Dregur úr tekjuhallanum 6. september 2010 10:46
Tekjuhalli hins opinbera var 30 milljarðar á öðrum ársfjórðungi 2010 og hefur dregið úr tekjuhallanum miðað við sama tíma í fyrra þegar hallinn nam 42 milljörðum króna. Þetta kemur fram í Hagstíðindum Hagstofunnar sem koma út í dag. „Sem hlutfall af landsframleiðslu ársfjórðungsins mældist tekjuhallinn 8,0% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 18,6%. Á sama ársfjórðungi 2009 mældist tekjuhallinn 11,1% af landsframleiðslu og 28,3% af tekjum hins opinbera," segir á vef Hagstofunnar en að mati stofnunarinnar skýrist þessi bætta afkoma fyrst og fremst af auknum skatttekjum sem hækkað hafa verulega milli umræddra tímabila á sama tíma og dregið hefur verulega úr fjárfestingu hins opinbera eða um tæplega þriðjung. „Heildartekjur hins opinbera námu 162 milljörðum króna á 2. ársfjórðungi 2010 samanborið við 147 milljarða króna á sama tíma 2009 og hækkuðu um 10,2% milli ára," segir ennfremur. Að mati Hagstofunnar skýrist hækkun á tekjum fyrst og fremst af 6,6 milljarða króna auknum tekjum af tryggingagjöldum milli ára og um 5,7 milljarða króna meiri tekjum af tekjusköttum. „Á sama tíma jukust heildarútgjöld hins opinbera um 2,3% milli árs-fjórðunganna eða úr tæplega 189 milljörðum króna 2009 í ríflega 193 milljarða króna 2010. Útgjaldahækkunin skýrist að mestu af 8,6 milljarða króna auknum vaxtakostnaði hins opinbera og 3,7 milljarðar króna vexti í kaupum á vöru og þjónustu, en á móti vegur 4,4 milljarðar króna minni fjárfestingarkostnaður og 3,7 milljarða króna lækkun í félagslegum tilfærslum til heimilanna." Hrein peningaleg eign versnar um næstum 600 milljarða Þegar litið er til heildarskulda ríkissjóðs námu þær 1.636 milljörðum króna í lok 2. ársfjórðungs 2010 eða sem samsvarar 106% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. „Að teknu tilliti til peningalegra eigna var hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, neikvæð um 546 milljarða króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem svarar til 35,4% af áætlaðri landsframleiðslu ársins." Ef borið er saman við sama tíma í fyrra og í hittifyrra kemur í ljós að þá var hrein peningaleg eign ríkissjóðs neikvæð um 27,5% af landsframleiðslu á sama ársfjórðungi 2009 en aftur jákvæð um 2,5% af landsframleiðslu á þeim ársfjórðungi 2008. „Samkvæmt þessu hefur hrein peningaleg eign ríkissjóðs því versnað um 583 milljarða króna á tveggja ára tímabili eða um 37,8% af landsframleiðslu."
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira