Ásta Dís verður framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar 6. september 2010 16:18 Ásta Dís Óladóttir.
Ásta Dís Óladóttir mun á næstu dögum taka við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli samkvæmt tilkynningu Isavia ohf. Ásta Dís Óladóttir er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og doktorspróf í alþjóðlegum viðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Hún hefur undanfarin ár starfað við Háskólann á Bifröst sem dósent í viðskiptafræði, forstöðumaður rannsóknaseturs um alþjóðleg viðskipti og forseti Viðskiptadeildar, en hún var fyrst kvenna til að gegna stöðu deildarforseta í viðskiptadeild háskóla hér á landi. Hún var áður aðjúnkt við Viðskiptadeild Háskóla Íslands ásamt því sem hún gegndi stöðu markaðs- og kynningarstjóra deildarinnar í um 4 ár. Þá hefur hún sinnt stundakennslu við Háskólann í Reykjavík og hefur starfað undanfarin ár við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn. Ásta Dís hefur flutt fjölmarga fyrirlestra og erindi á fræðasviði sínu hér á landi og á erlendum vettvangi og birt greinar í innlendum og erlendum tímaritum. Hún hefur víðtæka reynslu og hefur m.a. gegnt stjórnunarstöðum á ýmsum sviðum atvinnulífsins, ásamt því að koma að rekstri, þ.m.t. verslunarrekstri. Hún hefur á undanförnum árum setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja hér á landi sem og erlendis. Hún er stjórnarformaður SpKef sparisjóðs, varaformaður stjórnar Frumtaks, fjárfestingasjóðs ásamt því að sitja í fjárfestinganefnd sjóðsins og situr í stjórn Húsasmiðjunnar. Þá var Ásta Dís stjórnarformaður Mentor, Norrænna mynda, Heilsuverndarstöðvarinnar og fleiri fyrirtækja, átti sæti í endurskoðunarnefnd Landsvirkjunar og háskólaráði Háskólans á Bifröst.
Mest lesið Níu systkini, móðir um tvítugt og símtalið sem ekkert foreldri vill fá Atvinnulíf ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Núna er hægt að framvísa lófanum til að komast í ræktina Neytendur Eigin samastaður í Reykjavík án þess að kaupa heila íbúð Samstarf Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent 330 þúsund ársreikningum síðar er starfið enn jafn skemmtilegt Framúrskarandi fyrirtæki Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fleiri fréttir Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Sjá meira