Sigurður krafinn um 600 milljónir 30. ágúst 2010 18:45
Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt Sigurði Einarssyni, fyrrverandi stjórnarformanni, til greiðslu á um 600 milljóna króna skuld sem stofnað var til vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Lán sem Kaupþing veitti um 130 starfsmönnum sínum til hlutafjárkaupa stóðu í um 45 milljörðum króna í upphafi árs 2008 eða tæplega 10% af eiginfjárgrunni bankans að því er fram kemur í rannsóknarskýrslu Alþingis. Starfsmenn báru 10% sjálfskuldarábyrgð á lánunum en sú ábyrgð var felld niður á stjórnarfundi rétt fyrir hrun bankans. Þau lán sem Kaupþing hafði veitt Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni bankans, stóðu í um 6,3 milljörðum króna við fall bankans. Í maí tilkynnti slitastjórn Kaupþings að innheimta ætti lán til starfsmanna vegna hlutabréfakaupa. Þegar Sigurður kom hingað til lands í þar síðustu viku til að fara í yfirheyrslu hjá sérstökum saksóknara nýtti slitastjórnin tækifærið og birti honum stefnu en Sigurður hefur sem kunnugt er verið búsettur í Bretlandi undanfarin ár. Samkvæmt heimildum fréttastofu krefur slitastjórnin Sigurð um tæplega 600 milljónir króna. Búast má við að málið verði þingfest undir lok septembermánaðar. Í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis er listi yfir þá starfsmenn sem skulduðu bankanum mest vegna hlutabréfakaupa. Ofarlega á þeim lista eru t.a.m. Ingólfur Helgason, Hreiðar Már Sigurðsson, Kristján Arason og félag hans 7 hægri ehf. Slitastjórnin vinnur einnig að því að rifta ráðstöfunum nokkurra aðila sem færðu eignarhluti sína yfir í einkahlutafélög. Má gera ráð fyrir að riftunarmálin verði þingfest í september og október takist ekki að semja við starfsmennina áður.
Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sjá meira