Auður kaupir Yggdrasil 30. júní 2010 12:17 Yggdrasil. Mynd úr safni.
AUÐUR I fagfjárfestasjóður slf. og einkafjármagnssjóðurinn Arev NI slhf. hafa náð samkomulagi um kaup AUÐAR I á 100% hlut í félögunum Yggdrasil ehf. og Veru líf ehf. Félögin voru áður í eigu Arev NI einkafjármagnssjóðsins. Yggdrasill og Vera líf sinna heildsölu og smásöluverslun á lífrænt ræktuðum og heilsusamlegum vörum. Meðal þekktra vörumerkja sem Yggdrasill flytur inn eru Rapunzel, Dr. Hauschka snyrtivörur frá Þýskalandi, Clipper te- og kaffivörur frá Bretlandi, Holle barnamatur frá Sviss og nokkur vörumerki frá hollenska fyrirtækinu Natudis sem er eitt stærsta lífræna fyrirtækið í Hollandi og Belgíu. Um er að ræða fimmtu fjárfestingu fagfjárfestasjóðsins AUÐAR I sem rekinn er af Auði Capital hf., en sjóðurinn festi nýlega kaup á öllu hlutafé í TAL hf. Með kaupunum hyggst sjóðurinn styrkja stöðu fyrirtækja sinna á markaði fyrir heilsu- og lífræntræktaðarvörur, ná fram aukinni hagkvæmni í rekstri og styrkja grundvöllinn fyrir frekari sókn í framtíðinni en fyrir á AUÐUR I einnig félögin Maður Lifandi og BioVörur. Einkafjármagnssjóðurinn Arev NI er í eigu eignarhaldsfélagsins Arev ehf. og Sparisjóðabankans. Sjóðurinn hefur fjárfest í óskráðum vaxtarfyrirtækjum, aðallega á sviði heildsölu, smásölu og léttum iðnaði. Áhersla er lögð á að sjóðurinn sé leiðandi og mótandi fjárfestir sem tekur virkan þátt í rekstri og uppbyggingu fyrirtækja sinna. Arev verðbréfafyrirtæki hf. sinnir eignastýringu fyrir sjóðinn. Arev verðbréfafyrirtæki hf. var ráðgjafi seljanda við söluna en fyrirtækjaráðgjöf Auðar Capital hf. ráðgjafi kaupanda.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins Viðskipti innlent Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Viðskipti innlent ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Sjá meira