Seldi sér Iceland Express á 20 sinnum lægra verði 25. febrúar 2010 12:15
Iceland Express flugfélagið var metið á 20 sinnum hærra verði árið 2006 en það verð sem Pálmi Haraldsson greiddi fyrir flugfélagið þegar hann seldi sjálfum sér það út úr Fons. Flugfélagið Iceland Express var selt út úr Fons, eignarhaldsfélagi Pálma Haraldssonar, hinn 24. nóvember 2008 til eignarhaldsfélagsins Fengs, sem einnig var í eigu Pálma. Þetta var einum og hálfum mánuði eftir bankahrunið. Kaupin voru framkvæmd þannig að hlutafjáraukning átti sér stað í Fons upp á 300 milljónir króna og var Pálmi Haraldssonar skráður fyrir hrenni allri. Iceland Express var hins vegar metið á sex milljarða króna þegar það var fært frá Fons inn í Northern Travel Holding í desember árið 2006. Þegar flugfélagið var selt til Pálma á ný í nóvember 2008 var það selt á 20 sinnum lægra verði en það hafði verið metið á aðeins tveimur árum áður.Viðskiptablaðið greinir frá þessu í dag í fréttaskýringu, en samkvæmt áætluninni Project ScanTravel mun Iceland Express hafa verið selt frá Fons til NTH á sex milljarða. Viðskiptablaðið greinir frá því að ekkert hafi verið greitt fyrir kaupin heldur hafi Fons veitt NTH sex milljarða króna seljendalán vegna viðskiptanna, þetta lán hafi síðan verið bókfært sem eign í ársreikningi Fons.Fons var sem kunnugt er úrskurðað gjaldþrota í apríl 2009. Kröfur í þrotabú félgasins nema fjörutíu milljörðum króna. Skiptastjóri þrotabús Fons hefur sem kunnugt er ákveðið að láta reyna á riftun arðgreiðslu upp á 4,2 milljarða króna út úr Fons til félagsins Matthews Holding í Lúxemborg í ágúst 2007. Stefna þess efnis verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur síðar í dag.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira