Afkastageta gagnavers margfölduð 20. október 2010 16:34
Afkastageta gagnavers Thor Data Center í Hafnarfirði, sem tekið var í noktun síðastliðið vor, hefur verið margfölduð en nýrri gámaeiningu hefur verið komið fyrir í húsnæði versins við Steinhellu í Hafnarfirði. Gámaeiningin inniheldur meðal annars nýjan kælibúnað sem er „afrakstur margra mánaða hönnunarsamstarfs íslenskra sérfræðinga Thors og spænskra framleiðenda gámaeininganna," eins og segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Þá segir að vinna sé jafnframt hafin við uppsetningu nýs hýsingarbúnaðar í sérsmíðuðum vélarsal sem tengjast mun nýja gámnum. „Að þessum áfanga loknum margfaldast hýsingargeta Thors og verður gagnaverið undir það búið að sinna hýsingarþörfum mjög stórra fyrirtækja. Fyrsti erlendi viðskiptavinur gagnaversins, norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software, flutti umtalsverðan hluta af gagnavinnslu sinni hingað til lands í maí síðastliðnum." „Thor Data Center er fyrsta og, hingað til, eina gagnaverið á Íslandi sem hannað er frá grunni sem Tier 3 gagnaver. Tier 3 er alþjóðleg flokkun yfir gagnaver sem tryggt geta a.m.k. 99.982% uppitíma, eru með fleiri en eina orkuuppsprettu og aðskilda kælidreifingu, sem gerir tæknimönnum kleift að sinna viðhaldi án þess að rjúfa þurfi tengingu búnaðarins við vefinn á meðan," segir ennfremur en fyrirtækið hefur tryggt sér kaup á 3,2 megawatta raforku frá HS Orku á Suðurnesjum og ákvæði eru í samningnum um allt að 19,2 megawött ef umsvifin aukast. „Thor Data Center býður viðskiptavinum sínum upp á þjónustu við gagnavistun, afritun og hýsingu. Á næstunni mun fyrirtækið einnig bjóða þjónustu sína til smærri aðila í gegnum netið. Gagnaver Thor í Hafnarfirði hefur hlotið alþjóðlega vottun skv. ISO 27001 öryggisstaðlinum," segir að lokum.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira