„Við þurfum að komast inn í hausinn á þér“ 16. október 2010 19:05
Starfsmaður Íslandsbanka hefur lagt fram kvörtun til Héraðsdóms Reykjavíkur vegna harðræðis Slitastjórnar Glitnis og sérfræðinga á hennar vegum við skýrslutöku. Eins og fréttastofa greindi frá á mánudag kvartaði Íslandsbanki til Fjármálaeftirlitsins vegna óeðlilegra afskipta og hótana slitastjórnar Glitnis í garð starfsmanna Íslandsbanka vegna yfirheyrslna sem áttu sér stað í yfirheyrsluherbergi þrotabús Glitnis í Sóltúni. Nú hefur viðskiptastjóri hjá Íslandsbanka lagt fram formlega kvörtun til Héraðsdóms Reykjavíkur vegna framkomu slitastjórnarinnar. Hann lýsir í bréfinu fundi sem hann átti með Richard Abbey hjá Kroll í október í fyrra. Abbey hafi reynt að gera lítið úr störfum hans fyrir bankann og gert hann tortryggilegan. Tilefni kvörtunarinnar er svo skýrslutaka í júlí, en í henni hafi verið mætt af hálfu slitastjórnarinnar Steinunn Guðbjartsdóttir og áðurnefndur Abbey, auk bandarísks lögmanns, Michael C. Miller. Viðskiptastjórinn fékk spurningar eins og með hverjum hann væri í liði. Þá hafi fulltrúar slitastjórnar orðið pirraðir yfir svörum hans og í samráði við lögmann sinn ákvað maðurinn að slíta fundinum. Þá fékk hann viðbrögð sem hann segir ekki hægt að túlka öðruvísi en sem beinar hótanir. Bandaríski lögmaðurinn mun hafa sagt við hann: „You are hiding something. We need to dig into you." Eða: „Þú leynir einhverju. Við þurfum að komast inn í hausinn á þér." Í beinu framhaldi af því mun Richard Abbey hafa sagt að það væru tvær stefnur í gangi og það væri alltaf hægt að bæta fólki inn í þær. Steinunn Guðbjartsdóttir á þá að hafa bætt við eitthvað á þessa leið: „Það er ekkert markmið okkar í sjálfu sér að eyðileggja sem flestar fjölskyldur." Í lok bréfsins kvartar maðurinn undan framferði Steinunnar og gerir kröfu um að slitastjórnarmönnum verði vikið úr starfi og aðrir skipaðir í þeirra stað. Tvö hinna stefndu sem slitastjórn Glitnis hefur höfðað mál gegn í New York eru hluthafar í 365 miðlum sem eiga og reka fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira