Fjárfestingar á Cayman eyjum jókst um sextán þúsund prósent Guðný Helga Herbertsdóttir skrifar 31. ágúst 2010 12:08
Bein fjárfesting Íslendinga í skattaskjólinu á Cayman eyjum jókst um tæplega sextán þúsund prósent milli áranna 2008 og 2009. Hækkunin skýrist fyrst og fremst af því að Seðlabankinn hefur ekki haft aðgang að gögnum frá skattaparadísinni fyrr en nú. Í nýjum tölum frá Seðlabankanum kemur fram að bein fjárfesting Íslendinga erlendis á síðasta ári nam alls 555 milljörðum króna. Þetta er töluverður viðsnúningur frá árinu áður en þá var fjárfestingin neikvæð um rúma 374 milljarða króna. Skýrist þetta einkum af því að mörg skuldsett fyrirtæki sem áður höfðu neikvæð áhrif á heildartöluna eru nú farin í þrot. Íslendingar fjárfestu mest í Bretlandi á síðasta ári, eða fyrir 262 milljarða króna. Næst á eftir komu fjárfestingar í Belgíu, Lúxemborg og Hollandi. Mest var fjárfest í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, einkahlutafélögum og framleiðslu. Þrátt fyrir að Íslendingar hafi fjárfest fyrir um 120 milljarða króna í einkahlutafélögum erlendis er fjármunaeign þeirra neikvæð um 165 milljarða króna. Þá jókst bein fjárfesting Íslendinga í skattaskjólinu á Cayman eyjum mikið á milli áranna 2008 og 9. Fór frá því að vera 26 milljónir króna í rúmlega fjögurþúsund og eitthundrað milljónir, eða um eitthundrað og sextíu sinnum meiri. Bein fjármunaeign Íslendinga í skattaparadísinni jókst einnig gríðarlega á milli ára. Í fyrra taldi hún um 58 milljarða króna en var áður um 400 milljónir. Ástæðan fyrir þessari hækkun er fyrst og fremst sú að Seðlabankinn fær nú upplýsingar um félög á Cayman eyjum sem bankinn hefur ekki haft aðgang að áður. Samanburður á milli ára er því vart marktækur.
Mest lesið Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Viðskipti innlent Frumkvöðull stimplar sig aftur inn með 622 kílómetra drægni Samstarf Ekkert blabla: „Þá get ég bara spurt Copilot hvað Rakel er með í laun?“ Atvinnulíf Þú þarft ekki alltaf lægri vexti til að spara milljónir á húsnæðislánum Samstarf Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Viðskipti innlent Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Viðskipti innlent Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar Viðskipti innlent 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Viðskipti innlent Atli Þór til Almannaróms Viðskipti innlent Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna nýtt kaffihús í Listasafni Reykjavíkur Svona er umhorfs í endurbættri fríhöfn Tjáir sig ekki um hvort mál tengt Heiðari sé til skoðunar 65 milljarða halli ef svartsýna sviðsmyndin rætist Á ég að festa vextina á húsnæðisláninu? Atli Þór til Almannaróms Sjö milljarðar gætu farið frá ríki til flugfélaga með sérlausn Markaðurinn verðleggur meiri verðbólgu eftir fjárlögin Reiðarslag, gríðarleg vonbrigði og „efnahagslegt flanerí“ Færri tengifarþegar en fleiri komu til Íslands Ferðamenn verða rukkaðir um aðgang að ferðamannastöðum Bankaskattur hækkaður um 75 prósent Gert ráð fyrir fimm milljarða afgangi „Það er svona sem við stækkum þessa köku“ Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð „Lán á bara að vera lán“ Komin með ný nöfn Jóhanna, Egill og dr. Tingting til Reykjavík Geothermal Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Svara ekki spurningum um mögulegar uppsagnir hjá NetApp Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Sjá meira