Viðskipti innlent

Stór hluti heimila í vanskilum eða ná ekki endum saman

Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili.

Fjallað er um málið á vefsíðu Hagstofunnar en Hagstofan hefur gefið út Hagtíðindi þar sem nánar er greint frá niðurstöðum um fjárhagsstöðu heimilanna 2004 til 2009.

Á vefsíðunni segir að árið 2009 áttu 39% heimila erfitt með að ná endum saman. 15% heimila töldu húsnæðiskostnað þunga byrði og svipað hlutfall heimila taldi greiðslubyrði annarra lána en húsnæðislána/leigu vera þunga.

Tæp 30% heimila gátu í ársbyrjun 2009 ekki mætt óvæntum útgjöldum að upphæð 130 þúsund með þeim leiðum sem þau venjulega nýta til að standa undir útgjöldum. Þegar heildarmyndin er skoðuð var fjárhagsstaða heimilanna verri í ársbyrjun 2009 en næstu ár á undan.

Þegar horft er til heimilisgerðar kemur í ljós að einstæðir foreldrar voru helst í fjárhagsvandræðum í ársbyrjun 2009. Barnlaus heimili þar sem búa fleiri en einn fullorðinn stóðu best fjárhagslega.

Þegar heimili voru greind eftir meðalaldri fullorðinna einstaklinga virðast heimili með meðalaldurinn 30-39 ára vera í mestum erfiðleikum. Almennt má segja að því hærri sem meðalaldur fullorðinna einstaklinga er á heimilinu því betur virðast heimilin vera stödd fjárhagslega.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×