Spáir því að íbúðaverð hækki um 10% næstu tvö árin 17. desember 2010 13:03
Greining Íslandsbanka spáir því að íbúðaverð muni hækka um 10% að nafnverði næstu tvö árin. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar þar sem fjallað er um nýjar tölur Þjóðskrár Íslands um að íbúðaverð í borginni hafi lækkað um 0,1% milli október og nóvember. Í Morgunkorninu segir að botninum sé náð á íbúðamarkaðinum að mati greiningarinnar. „Við gerum ráð fyrir að viðsnúningurinn á íbúðamarkaði verði enn frekar staðfestur í íbúðaverðsmælingum næstu mánaða. Spáum við því að íbúðaverð muni á næstu tveimur árum hækka um 10% að nafnverði," segir í Morgunkorninu. „Til grundvallar liggur spá okkar um að kaupmáttur launa haldi áfram að hækka, að það dragi úr atvinnuleysi, vextir lækki enn frekar, aðgengi að lánsfjármagni muni batna, gengi krónunnar muni styrkjast aðeins og að verðbólgan haldist lág. Almennt byggir spáin á því að hagvöxtur taki við sér á næstunni en að sá vöxtur verði hægur. Þá byggir spáin á því að landsmönnum taki að fjölga aftur með batnandi efnahag en nú um mitt ár hafði landsmönnum fækkað um 0,4% frá sama tíma fyrra árs og er það mesta fækkun á milli ára síðan 1888. Nokkuð er þó í að nýbyggingar íbúðarhúsnæðis taki við sér enda er byggingarkostnaður enn hár og talsvert óselt af því nýja húsnæði sem hafist var handa við að byggja fyrir fjármálakreppuna. Fjárfesting í íbúðarhúsnæði mun því áfram verða lítil."
Mest lesið Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Viðskipti innlent Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur EA lokar einu þekktasta leikjafyrirtæki heims Viðskipti erlent Meta sektað um þrjú þúsund milljarða króna Viðskipti erlent Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Viðskipti innlent Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Neytendur Fleiri fréttir Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Ekkert fannst í búi Omnom Fær endurgreitt vegna uppbyggingar eftir stórbrunann í Miðhrauni Trébútur fannst í Bónus hnetublöndu „Ég ætla að reyna að kaupa eins mikið og ég get“ Bein útsending: Mótvindur – fundur um ferðaþjónustu í Suðurkjördæmi Sjá meira