Viðskipti innlent

Vöruskiptin jákvæð um 6,3 milljarða í apríl

Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 40,8 milljarða króna og inn fyrir 34,4 milljarða króna. Vöruskiptin í apríl voru því hagstæð um rúma 6,3 milljarða króna. Í apríl 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 0,4 milljarða króna á sama gengi.

Þetta kemur fram á vefsíðu Hagstofunnar. Þar segir að fyrstu fjóra mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 176,8 milljarða króna en inn fyrir 139,1 milljarð króna . Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 37,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 28,5 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 9,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 6,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,1% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 40,1% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings tæpum 1,1 milljarði eða 0,8% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×