Viðskipti innlent

Avant fær heimild til nauðasamnings

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur veitt bráðabirgðastjórn Avant hf. heimild til að leita nauðasamnings við lánardrottna félagsins. Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Avant segir að rekstur félagsins haldi áfram þrátt fyrir þetta og að starfsfólk Avant muni leiðbeina viðskiptavinum félagsins ef þeir hafa einhverjar spurningar vegna málsins.

Í tillögu að nauðasamningi er gert ráð fyrir að Nýi Landsbankinn (NBI) taki félagið yfir og eignist þar með 99% hlut í því. Félagið sjálft eigi 1%. Þá fái helstu lánadrottnar og kröfuhafar 5,6% greitt upp í kröfur sínar.

Í tillögunni er gert ráð fyrir að almennir viðskiptavinir félagsins, sem eiga mögulega kröfu á félagið vegna ólögmætra gengislána fái að ljúka kröfum sínum með eftirfarandi hætti: Inneign komi til lækkunar á höfuðstól eftirstöðva lánssamnings þar sem því verði við komið.

Séu samningar uppgerðir en viðskiptavinur á kröfu vegna ólögmætra gengislána verður ein milljón kr. greidd að fullu eða 5,6% af viðkomandi kröfu.

Magnús segir að nú sé unnið að útreikningum vegna þessarar tillögu en félagið gerir ráð fyrir að nauðasamningsferlið taki um þrjá mánuði fyrir héraðsdómi.














Fleiri fréttir

Sjá meira


×