Viðskipti innlent

Útlán ÍLS námu 2 milljörðum í nóvember

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs (ÍLS) námu um 2 milljörðum króna í nóvember, en þar af voru tæpir 1,9 milljarðar króna vegna almennra lána.

Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu sjóðsins. Þar segir að samtals námu útlán á fyrstu 11 mánuðum ársins 2010 tæpum 25 milljörðum króna samanborið við rúmlega 28,5 milljarða á sama tímabili ársins 2009. Meðalútlán almennra lána voru um 8,3 milljónir króna í nóvember en um 9,6 milljónir í október síðastliðnum.

Heildarvelta íbúðabréfa nam um 119,5 milljörðum króna í nóvember samanborið við um 70 milljarða í október. Það sem af er ári hefur heildarvelta íbúðabréfa numið rúmum 828 milljörðum króna miðað við um 864 milljarða á sama tímabili í fyrra.

Greiðslur Íbúðalánasjóðs námu um 3,4 milljörðum króna í nóvember, en þær voru að mestu vegna aukaútdráttar húsbréfa. Uppgreiðslur lána Íbúðalánasjóðs í nóvember námu um 2,3 milljörðum króna.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×