Frumtak styður við sprotafyrirtækin 6. október 2010 06:00 Framkvæmdastjóri Frumtaks hélt í upphafi að hann myndi drukkna í fjárfestingarkostum. Sú varð ekki raunin. Markaðurinn/anton
Samlagssjóðurinn Frumtak er í eigu Nýsköpunarsjóðs atvinnulífsins, viðskiptabankanna þriggja og nokkurra lífeyrissjóða. Hann hefur yfir að ráða um fjórum milljörðum króna til kaupa á hlutafé í sprota- og nýsköpunarfyrirtækjum sem komin eru af klakstigi og eru vænleg til vaxtar og útrásar. Segja má að hann sé beint framhald af Nýsköpunarsjóði, sem fjárfestir í fyrirtækjum á klakstigi. Frumtak var sett á laggirnar vorið 2008 en fjárfesti í fyrsta sinn í febrúar í fyrra. Sjóðurinn hefur síðan þá keypt hlutafé í sex fyrirtækjum til viðbótar, þremur til fjórum á ári fyrir 832 milljónir króna. Hver einstök fjárfesting Frumtaks getur hlaupið á allt frá fimmtíu til fimm hundruð milljónum króna. Í reglum sjóðsins er miðað við að hann eigi hlutinn í þrjú til fimm ár. Ávöxtunarkrafa einstakra fjárfestinga er þrjátíu prósent að lágmarki. Sjálfur á sjóðurinn að vera starfræktur í sjö ár. Hann hefur heimild til að uppbótartíma í þrjú ár. Frumtak er starfræktur sem hefðbundinn sjóður. Hann er lokaður, kallar eftir nýju fé frá fjárfestum sem hlutdeild eiga í honum og fjárfestir í fjögur ár. Fjárfestingartímabilið er því rétt hálfnað. Eggert Claessen, framkvæmdastjóri Frumtaks, reiknar með því að verði fjárfest á sama hraða og hingað til muni sjóðurinn eiga í fimmtán fyrirtækjum þegar yfir lýkur. Hann segir sjóðinn nýta helming fjárfestingargetu sinnar. „Ég hafði meiri væntingar til hans. Staðreyndin er sú að þau verkefni sem sjóðnum stendur til boða að fjárfesta í eru ekki það mörg eða af þeim gæðum sem sjóðurinn gerir kröfu um. Það er áhyggjuefni,“ segir hann. „Ég hélt í upphafi – fyrir tveimur árum – að ég myndi nær drukkna í endalausum hugmyndum. Staðreyndin er sú að svo er ekki. Við virðumst eiga nóg af hugmyndum en ekki nóg af fyrirtækjum.“
Mest lesið „Ég hef þó aldrei kunnað vel við titilinn framkvæmdastjóri“ Atvinnulíf 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Viðskipti innlent Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Viðskipti innlent Fjórar týpur af yfirmönnum sem eru sjálfir að drukkna í vinnu Atvinnulíf Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Viðskipti innlent Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Samstarf Meðallaun 758 þúsund á mánuði Viðskipti innlent Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Viðskipti innlent Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Viðskipti innlent Leggja á 39 prósenta skatt á eignir slitabúanna Viðskipti innlent Fleiri fréttir 118 ára sögu Hans Petersen að ljúka Boða tæp 10% þjóðarinnar á hluthafafund Miðeind festir kaup á Snöru Keypti hús við Sóleyjargötu af borginni á 310 milljónir Minni þorskafli kosti fleiri milljarða Verður nýr yfirlögfræðingur SFF Ráðin forstöðumaður hjá Eimskip Reon ræður inn hönnunarstjóra frá Spotify Kjarasamningar Play og ÍFF í höfn Greiddu 865 milljónir fyrir Herkastalann Löng röð myndaðist í Lágmúlanum á miðnætti Hrefna stýrir Attentus SFF hafna ásökunum bifreiðaeigenda „Klárlega“ breytingar í ytra umhverfi sem ÁTVR þurfi að laga sig að Vilborg Arna og Auðbjörg til liðs við FranklinCovey Þorgerður skipuð forstjóri ÁTVR „Ég veit ekki alveg hvað er að fara að gerast“ Ríkið greiddi 25 milljarða í laun Skor flytur: „Ansi þreytt“ að þurfa að reka fólk út klukkan tíu Meðallaun 758 þúsund á mánuði Saka hagfræðing SFF um að reyna að draga úr samkeppni í tryggingum Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Sveiflujöfnunarauki helst óbreyttur Ráðinn framkvæmdastjóri Janusar heilsueflingar Fyrsta sinni í mörg herrans ár neftóbakslaust í Leifsstöð Mun stýra Starfsþróunarsetri BHM Tilfallandi neftóbaksskortur veldur skjálfta 134 sagt upp í þremur hópuppsögnum Ingvi Steinn frá Arion til Defend Iceland Ferjuleiðir taka við rekstri ferjunnar Baldurs Sjá meira