Gengisdómur hefur lítil áhrif á lausafjárstöðu bankanna Sigríður Mogensen skrifar 18. júní 2010 18:30
Aðeins í undantekningatilvikum mun leiðrétting á höfuðstól gengistryggðra lána leiða til útgreiðslu hjá fjármálafyrirtækjum og því hefur nýlegur hæstaréttardómur lítil áhrif á lausafjárstöðu þeirra. Þetta er mat Seðlabanka Íslands. Enn er algjör óvissa um lögmæti húsnæðislána bankanna í erlendri mynt. Ekki hefur gefist ráðrúm til að meta hvaða áhrif dómurinn hefur að fullu á bankakerfið, enda ríkir enn lagaleg óvissa um hve víðtæk áhrif dómsins verða. Seðlabankinn kynnti mat sitt á áhrifum dómsins á fjármálafyrirtæki fyrir efnahags- og skattanefnd og viðskiptanefnd Alþingis á fundi í morgun. Það er mat Seðlabankans að aðeins í undantekningartilvikum myndi leiðrétting á höfuðstól lána leiða til útgreiðslu hjá fjármálafyrirtækjum. Því yrðu áhrif á lausafjárstöðu þeirra yfirleitt lítil. Almenn lækkun á höfuðstól gengistryggðra lána myndu lækka eigið fé fyrirtækjanna, en umtalsverðar höfuðstólslækkanir hafi þegar verið áformaðar. Þá muni líklega draga úr vanskilum og þau áhrif komi á móti. Þá telur Seðlabankinn að fjármálafyrirtækin gætu þurft minna eigið fé en áður vegna þess að dregið hefur úr gjaldeyrisójafnvægi. Algjör óvissa ríkir um lögmæti gengistryggðra húsnæðislána en unnið er að því að meta stöðu þeirra lána. Landsbankinn og Arion banki hafa þó haldið því fram að lán þeirra séu í samræmi við lög. Hjá Íslandsbanka er verið að meta stöðuna. Bankar og önnur fjármálafyrirtæki hafa í dag tilkynnt að ekki verði sendir út greiðsluseðlar vegna gengistryggðra bílalána næstu mánaðarmót. Þá hefur ýmist verið gert tímabundið hlé á innheimtuaðgerðum eða þeim hætt.
Mest lesið Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Viðskipti innlent Bretar fyrstir til að semja við Trump Viðskipti erlent Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Viðskipti innlent Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Viðskipti innlent Hefði fengið rúmum tíu þúsundkalli meira í vasann í bankaútibúi Neytendur Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best Atvinnulíf Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Viðskipti innlent Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Viðskipti innlent Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Sjá meira