Viðskipti innlent

Markaðsvirði hlutabréfa jókst um 5% í október

Markaðsvirði skráðra hlutabréfa í Kauphöll Íslands nam 246 milljörðum kr í lok október 2010 sem er hækkun um 5,1% í mánuðinum.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að staða markaðsskuldabréfa nam 1.798,6 miljörðum kr. í lok október 2010 og lækkaði um 54 milljarða kr. í takt við lækkun bankabréfa.

Staða ríkisvíxla lækkaði um 7,9 milljarða kr. í október 2010.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×