Vísa á bug ummælum Evu Joly og segja þau ærumeiðandi 14. október 2010 10:58 Eva Joly.
Geysir Green Energy (GGE) vísar á bug ummælum Evu Joly ráðgjafa sérstaks saksónara þess efnis að sala á hlut félagsins í HS Orku gefi tilefni til sérstakrar sakamálarannsóknar. Í tilkynningu segir að félagið harmar að ráðgjafi saksóknara láti hafa eftir sér svo ærumeiðandi ásakanir sem byggja á staðlausum tilgátum. „Hafi íslensk yfirvöld áhuga á því að fylgja eftir þessum annars fjarstæðukenndu ásökunum um saknæmt athæfi í tenglsum við viðskiptin, með lögmætri rannsókn saksóknara á þeim þá fagnar Geysir Green Energy því. Með því ætti a.m.k. umræðu um meint ólöglegt athæfi í tengslum við þessi viðskipti að ljúka fyrir fullt og allt. Slík rannsókn gæti þá bæst í hóp þeirra rannsókna sem viðskiptin hafa þegar sætt og hafa staðfest lögmæti viðskiptanna, hjá nefnd um erlenda fjárfestingu í tvígang og hjá sérstakri nefnd skipaðri af forsætisráðherra," segir í tilkynningunni. „Geysir Green Energy hefur óskað eftir því við Umboðsmann Alþingis að hann kanni og fari yfir stjórnsýslulega meðferð málsins þar sem lögfræðingar félagsins telja vafasamt að forsætisráðherra hafi stjórnsýslulegt hæfi til þess að skipa rannsóknarnefnd sem framkvæma á óháða og sjálfstæða rannsókn á viðskiptum einkaaðila. Ekki var um að ræða sölu á auðlindum sem HS Orka hefur afnotarétt af en þær auðlindir eru í eigu sveitarfélaga. Fullyrðingar um annað eru ósannindi eða útúrsnúningur."
Mest lesið Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Bíóinu í Álfabakka lokað í janúarlok Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira