Viðskipti innlent

Skuldabréf Björgólfs til sérstaks saksóknara

Björgólfur Guðmundsson.
Björgólfur Guðmundsson.

Embætti sérstaks saksóknara hefur nú til rannsóknar kaup fjárfestingarsjóðs Fyrirtækjabréfa Landsbankans á 400 milljóna króna skuldabréfi útgefnu af Björgólfi Guðmundssyni í byrjun árs 2005.

Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins.

Þar segir að umræddur sjóður átti einungis að fjárfesta í „skuldabréfum traustra fyrirtækja og fjármálastofnana" samkvæmt fjárfestingarstefnu og ljóst að skuldabréf útgefið af einstaklingi samræmist ekki þeirri stefnu.

Björgólfur notaði skuldabréfið til að fjármagna stofnun minningarsjóð um dóttur sína, Margréti Björgólfsdóttur. Björgólfur var, ásamt syni sínum, stærsti einstaki eigandi Landsbankans og formaður bankaráðs hans.

Hér má nálgast fréttina á vef Viðskiptablaðsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×