Hvetja lánþega til að sniðganga frumvarp Árna Páls 2. júní 2010 08:49 „
Samtök lánþega telja að hag lánþega sé best borgið með því að sniðganga með öllu þau úrræði sem boðið er uppá í nýframlögðu frumvarpi félagsmálaráðherra, vilji svo ólíklega til að það verði samþykkt á Alþingi." Þetta segir í yfirlýsingu frá Samtökum lánþega vegna nýframlagðs frumvarps félagsmálaráðherra, og eins vegna auglýsingaherferðar SP-fjármögnunar, Í yfirlýsingunni segir að jafnframt benda Samtök lánþega viðskiptavinum SP-fjármögnunar á að bíða með allar skilmálabreytingar þar til réttarstaða lánþega liggur ljós fyrir eftir dóm Hæstaréttar, sem væntanlegur er innan þriggja vikna. „Rök Samtaka lánþega fyrir andmælum sínum eru fyrst og fremst þau að með frumvarpi því sem félagsmálaráðherra hefur nú lagt fram, er gengisáhætta sem þegar hefur fallið á lánþega, fest á herðum lánþega, óháð öllum væntingum um sterkari gjaldmiðil. Er því verulega vafasamt að þetta úrræði gagnist, jafnvel þó svo ólíklega vilji til að hæstiréttur dæmi að framangreind lán standist lög. Sömu röksemdir eiga við um markaðsherferð SP-fjármögnunar hvar boðin er gulrót í formi lækkunar höfuðstóls og afborgana til skamms tíma. Í ljósi aðstæðna, fyrirliggjandi dóms Hæstaréttar sem og væntinga á gjldeyrismarkaði, telja Samtök lánþega því einsýnt að hag allra þeirra sem berjast við stökkbreyttr afborganir gengistryggðra skuldbindinga, sé best borgið með því að bíða afstöðu hæstaréttar og meta þá stöðuna upp á nýtt. Því hvetja Samtök lánþega skuldara gengistryggðra bílasamninga til að greiða ekki sé af þeim samningum fyrr en dómur fellur í Hæstarétti. Er sú hvatning sett fram til að verja hagsmuni lánþega komi til þess að Hæstiréttur dæmi lánin ólögleg," segir í yfirlýsingunni.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Viðskipti innlent Þakefni sem standast rokið, rigninguna og tímans tönn Samstarf Súperdósin snýr aftur Neytendur Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Viðskipti innlent Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira