Ekki vitað hvað fæst upp í almennar kröfur þrotabús Baugs Þorbjörn Þórðarson skrifar 27. mars 2010 18:35
Skiptastjóri þrotabús Baugs segir að ekkert liggi fyrir um hversu mikið fáist upp í almennar kröfur þrotabúsins. Heildarkröfur í þrotabú Baugs eru samtals 319 milljarðar króna, rúmlega þriðjungur þeirrar upphæðar eru veðtryggðar kröfur og hafa stórir kröfuhafar eins og Landsbankinn nú þegar gengið að veðum sínum, t.d í bresku verslanakeðjunni Iceland Foods. Almennar kröfur eru samtals 166 milljarðar króna, en það eru kröfur sem eru ekki tryggðar með veðum, eru aftar í kröfuröð og óvíst er hvað fæst upp í. Erlendur Gíslason, skiptastjóri þrotabús Baugs, segir að ekkert liggi fyrir um verðmæti eigna til skiptanna. Hann segir jafnframt að endanleg fjárhæð samþykktra krafna liggi ekki fyrir, en mörgum kröfum í þrotabúið var hafnað með fyrirvara. Erlendur segir að frétt Morgunblaðsins í dag um að 1 - 2 prósent fáist upp í almennar kröfur sé úr lausi lofti gripin og að prósentan sé ekki frá sér komin. Að sögn Erlendar er ekki algengt þegar um gjaldþrota fyrirtæki sé að ræða að endurheimtuhlutfall almennra krafna fari yfir 10 prósent. Hann segir hins vegar of snemmt að spá um hvað hlutfallið verði í tilviki Baugs. Ekki sé tímabært að ræða endurheimtur fyrr en niðurstöður úr dómsmálum sem þrotabúið hafi höfðað liggi fyrir en þrotabúið hefur höfðað fimm riftunarmál þar sem samtals fjárhæð krafna hleypur á tugum milljarða króna.
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira