Kannaði sérstaklega fjórðung viðskipta Háskóla Íslands 25. febrúar 2010 11:05
Ríkisendurskoðun ákvað að kanna sérstaklega, í úrtaki, 21 af 83 viðskiptum sem Háskóli Íslands átti við birgja sína á tímabilinu janúar til október á síðasta ári. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunar um viðskipti ríkisstofnana við 800 birgja. Í skýrslunni segir að viðskipti þessara 83 birgja, sem voru í úrtakinu, námu samtals samtals 221 milljónum kr. á þessu tímabili í fyrra. Viðskipti við sömu birgja námu alls 203,4 milljón kr. á árunum 2007 og 2008. Ríkisendurskoðun taldi ástæðu til að kanna 21 viðskipti sérstaklega. Viðskiptin 21 eru síðan talin upp í skýrslunni en þar segir að enginn formlegur verðsamanburður var gerður fyrir eftirfarandi kaup, utan þau síðustu. Í því tilfelli og því næstsíðasta er útboðsskylda algjörlega skýr að mati Ríkisendurskoðunar. Tilfellin tvö eru annarsvegar að skólinn keypti fisk til rannsókna af útgerðarfélaginu Glófaxa ehf. fyrir 14,3 milljónir kr. á tímabilinu. Skólinn hefur ekki skýrt hvað réði vali á birgja. Hitt tilfellið er að hreingerningaþjónustan Axel ehf. fékk greiddar samtals 54,4 milljónir kr. á tímabilinu fyrir hreingerningarþjónustu. Skólinn óskaði eftir tilboðum frá þremur birgjum og bárust tilboð frá þeim öllum. Hreingerningarþjónusta Axels ehf. átti lægsta tilboðið. Að mati Ríkisendurskoðunar er umfang verksins svo mikið að slík verðkönnun var ófullnægjandi. Verkið hefði átt að bjóða út. Skólinn hefur ákveðið að bjóða þjónustuna út í samstarfi við Ríkiskaup þegar gildandi samningar renna út. Þá kemur fram að skólinn keypti gistingu í Vestmannaeyjum af fyrirtækinu fyrir samtals 618 þúsund kr. á tímabilinu. Ríkisendurskoðun hefur ekki fengið skýringar á því hvað réði vali. Hvað afganginn af viðskiptum skólans við 21 birgja sem athugasemdir voru gerðar við segir í skýrslunni að val á þeim hafi einkum ráðist á þekkingu á störfum viðkomandi eða á reynslu skólans frá fyrri samskiptum.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira