Nýherji eykur hlutafé og lýkur samningum við Arion og Íslandsbanka 29. september 2010 20:15 Nýherji.
Stjórn Nýherja hf. hefur ákveðið að nýta heimild aðalfundar í febrúar síðastliðnum um að auka hlutafé félagsins um 120 mkr að nafnverði. Hefur félagið gengið frá samningum við fjárfesta um kaup á þessu hlutafé á genginu 7,0 og er heildar söluverð því 840 milljónir króna. Í þessari viku verður hlutafé að nafnvirði tæplega 28 milljónir króna skráð hjá Verðbréfaskráningu Íslands, en hlutafé að nafnverði 92 milljónir króna verður skráð í desember. Um helmingur hlutafjáraukningarinnar kemur frá nýjum hluthöfum. Eftir aukninguna í desember verður útgefið hlutafé félagsins 400 milljónir króna að nafnverði. Nýherji hefur jafnframt gengið frá samningum við Arion banka annars vegar og Íslandsbanka hins vegar um endurskipulagningu á langtímalánum félagsins, þar sem greiðslutími verður aftur með eðlilegum hætti. Til að lækka skuldir félagsins enn frekar hefur Nýherji gert samning um sölu á fasteign félagsins í Borgartúni 37 og er söluverðið 1.650 milljónir, en við það myndast söluhagnaður að fjárhæð 82 milljónir króna. Samhliða hefur félagið gert 15 ára leigusamning um Borgartúni 37. Vegna skuldbreytingar úr erlendum lánum í innlend lækkar höfuðstóll lána. Heildaráhrif þeirrar lækkunar og áðurnefndrar sölu á Borgartúni 37 er hagnaður eftir skatta upp á um 150 milljónir króna miðað við stöðu í lok 2. ársfjórðungs 2010. Heildaráhrif aðgerðanna eru að eigið fé félagsins styrkist um nálægt einn milljarð króna á árinu 2010. Að loknum þessum aðgerðum er fjárhagsstaða Nýherja orðin sterk á ný samkvæmt tilkynningui fyrirtæksins og eiginfjárhlutfall félagsins verður yfir 30% í lok árs. Þá styrkist lausafjárstaða og veltufjárhlutfall félagsins verður aftur eðlilegt. Vaxtaberandi skuldir félagsins verða eftir samningana um 2,6 milljarðar króna. Greiðslutími lána verður á bilinu sjö til fimmtán ár. Vaxtaberandi skuldir hafa þá lækkað um helming frá 30. júní. 2010.
Mest lesið eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Neytendur Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Neytendur Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Ævintýralegt líf: Fjárfestirinn bankaði á gluggann á garðkofanum þar sem hann bjó Atvinnulíf Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Eldsneytissparnaður með Mobil Delvac Kynningar Fleiri fréttir Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Sjá meira