Samtök fjárfesta eiga hundruð milljóna í sjóði 24. febrúar 2010 00:01 Samtök fjárfesta hafa átt um sjö hundruð milljónir króna á reikningi í þrjú ár. Fréttablaðið/Stefán „
Félagsmönnum hefur ekki fækkað þrátt fyrir hrunið. Í síðasta félagatali voru þeir um fimmtán hundruð. Færri þeirra eiga nú hlutabréf," segir Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta. Samtökin halda almennan fund í dag þar sem fjallað verður um nokkur dómsmál sem gengið hafa að undanförnu, svo sem gegn Glitni og Straumi. Vilhjálmur segir samtökin hafa komið vel undan efnahagshruninu. Þau keyptu hlutabréf í Verðbréfaþingi í kringum 1995, höfðu arð af fjárfestingunni og fengu dágóða summu þegar sænska kauphallarsamstæðan OMX tók þá íslensku yfir árið 2007. Söluandvirðið var í sænskum krónum. Það hefur frá upphafi legið inni á reikningi, nemur nú sjö hundruð milljónum króna og lýtur bæði stjórn samtakanna og viðskiptaráðuneytis. Einu tekjur sjóðsins eru vextir á reikningnum. Fé úr sjóðnum er nýtt til rekstrar samtakanna og er Vilhjálmur eini launaði starfsmaður þeirra. Eina eign samtakanna til viðbótar eru hlutabréf í Kauphöllinni upp á um sextíu milljónir króna. Ekki eru greidd félagsgjöld í Samtökum fjárfesta. Vilhjálmur segir það hafa verið reynt síðast fyrir um fjórum árum. Vilhjálmur segir innheimtuna hafa verið dýra og því ákveðið að fella hana niður þegar söluandvirðið skilaði sér á sínum tíma. - jab
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira