Telja stjórnvöld hafa stýrt milljarðakaupum bak við tjöldin Sigríður Mogensen skrifar 20. október 2010 18:42
ESA, Eftirlitsstofnun EFTA, telur allt benda til að íslensk stjórnvöld hafi haft afskipti af kaupum nýju bankanna á eignum peningamarkaðssjóða í hruninu, fyrir 80 milljarða króna. Þetta er rökstutt í ákvörðun stofnunarinnar um að rannsaka kaupin. ESA ákvað í byrjun september að hefja formlega rannsókn á því hvort kaup nýju bankanna þriggja á eignum peningamarkaðssjóða gömlu bankanna við slit þeirra í október 2008 hafi falið í sér ólögmæta ríkisaðstoð í skilningi EES samningsins. Keypt var úr sjóðunum fyrir 80 milljarða króna, dagana 17. til 30. október. Stjórnvöld hafa haldið því fram að þau hafi ekki skipt sér af þessu. Nýju bankarnir hafi ákveðið þetta sjálfir, á viðskiptalegum forsendum. Fjármálaráðuneytið hefur haldið því fram, opinberlega og gagnvart ESA, að stjórnvöld hafi ekki tekið þátt í ákvörðun um eða fjármögnun kaupanna. Í nýbirtum rökstuðningi ESA fyrir því að hefja rannsókn á málinu koma fram að sterkar vísbendingar séu um hið gagnstæða. ESA nefnir að ákvarðanir allra bankanna þriggja hafi verið sambærilegar og teknar á sama tíma. Það hafi þeir varla gert án þess að ráðfæra sig við FME og stjórnvöld. Bráðabirgðastjórnir Fjármálaeftirlitsins stýrðu bönkunum á þessum tíma. Í þeim stjórnum hafi setið embættismenn úr ráðuneytum og aðrir á vegum ríkisins. Einnig veki umfang viðskiptanna spurningar. Það komi á óvart að nýju bankarnir hafi ákveðið að standa í svona stórum og áhættusömum viðskiptum nokkrum dögum eftir að þeir urðu til. Þá myndi ekkert fyrirtæki sem stjórnist af hagnaðarsjónarmiðum hafa keypt eignirnar fyrir svo mikið fé. Þetta bendi til að stjórnvöld hafi beitt áhrifum. Gera má ráð fyrir að niðurstaða rannsóknar ESA liggi fyrir á næsta ári.
Mest lesið Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Viðskipti innlent Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Fjölmenntu á vorviðburð Málningar og Slippfélagsins Samstarf Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Viðskipti innlent Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira