Greining spáir 0,75 prósentustiga stýrivaxtalækkun 3. maí 2010 10:52 Reikna má fastlega með því nú að peningastefnunefndin endurtaki yfirlýsingu sína um að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar.
Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabanka Íslands er 5. maí næstkomandi. Greining Íslandsbanka reiknar með að peningastefnunefnd bankans ákveði að lækka vexti bankans um 0,75 prósentur. Við þetta lækka vextir á viðskiptareikningum innlánsstofnana úr 7,5% í 6,75% og vextir á lánum gegn veði til sjö daga úr 9,0% í 8,25%.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningarinnar. Þar segir að í síðustu fundargerð peningastefnunefndarinnar og yfirlýsingu nefndarinnar eftir fundinn segir að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðni eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar. Þrátt fyrir nokkurn óróa á erlendum mörkuðum hefur gengi krónunnar verið nokkuð stöðugt frá síðustu vaxtaákvörðun bankans 17. mars síðastliðinn.„Veltan á millibankamarkaðinum með gjaldeyri hefur verið mjög lítil og hefur Seðlabankinn ekki beitt inngripum á millibankamarkaðinum síðan í nóvember í fyrra. Í apríl hjaðnaði verðbólgan úr 8,5% í 8,3% og er frekari hjöðnun verðbólgunnar væntanleg á næstu mánuðum. Spáum við því að verðbólgan verði komin niður í verðbólgumarkmið Seðlabankans í lok næsta árs og mun fyrr, þ.e. snemma á næsta ári, ef miðað er við verðbólgu án áhrifa af óbeinum sköttum," segir í Morgunkorninu.„Einnig kom fram í síðustu fundargerð að svigrúm peningastefnunefndarinnar til vaxtalækkunar yrði takmarkað á meðan veruleg óvissa ríkir um aðgengi Íslands að alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Með annarri endurskoðun efnahagsáætlunarinnar hefur aðgengi batnað en með þeirri endurskoðun fékk bankinn aðgang að um 700 milljónum evra.Reikna má fastlega með því nú að peningastefnunefndin endurtaki yfirlýsingu sína um að haldist gengi krónunnar stöðugt eða styrkist, og verðbólga hjaðnar eins og spáð er, ættu forsendur fyrir frekari slökun peningalegs aðhalds að vera áfram til staðar.„Má í því ljósi, og með hliðsjón af erlendri fjármögnun, vænta þess að nefndin lækki vexti bankans nokkuð hratt á næstunni, en þó með þeim skorðum sem áætlun um afnám gjaldeyrishafta fyrir lok efnahagsáætlunarinnar í ágúst 2011 setur vaxtastefnunni. Spáum við því að nefndin verði komin með veðlánavexti bankans, sem nú eru 9,0%, niður í 6,0% í lok árs en á árinu eru eftir sex vaxtaákvörðunardagar," segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Viðskipti innlent Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Viðskipti innlent Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira