Lánastofnanir hundsuðu skilaboð frá FME Jón Hákon Halldórsson skrifar 3. október 2010 10:30
Lánastofnanir fóru ekki eftir tilmælum sem Fjármálaeftirlitið sendi þeim í dreifibréfi þann 14. september síðastliðinn um meðferð fjármögnunarleigusamninga þegar greiðsluseðlar voru sendir út nú um mánaðamótin. Í bréfinu fór Fjármálaeftirlitið þess á leit við lánastofnanir að meðferð fjármögnunarleigusamninga yrðu í samræmi við tilmæli sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gáfu út 30. júní síðastliðinn, eftir að dómur Hæstaréttar í gengistryggingarmálinu var kveðinn upp. Fjármögnunarleigusamningar eru þeir samningar sem mörg fyrirtæki nýttu til að fjármagna starfsemi sína áður en krónan hrundi. Lánastofnanirnar hafa hingað til hafnað því að gengisdómur Hæstaréttar frá 16. júní síðastliðinn eigi við um slíka samninga. Því hafa vextir og afborganir vegna slíkra samninga verið innheimtir frá fyrirtækjum með sama hætti og gert var áður en dómur var kveðinn upp, í stað lægstu óverðtryggðu vexti Seðlabanka Íslands á hverjum tíma út frá upphaflegum höfuðstól. Vísir sagði í síðustu viku frá fyrirtækinu Smákranar ehf. sem hefur stefnt Lýsingu vegna fjármögnunarleigusamnings sem fyrirtækið gerði til að fjármagna kaup á krana árið 2007. Smákranar krefjast þess að samningurinn verði gerður upp í samræmi við dóm Hæstaréttar frá 16. júní. Þessu hafnar Lýsing og segir að hæstaréttardómurinn eigi ekki við um fjármögnunarleigusamninga. Einar Hugi Bjarnason, lögmaður hjá Ergo lögmönnum, sem flytur málið gegn Lýsingu er ósammála og telur að dreifibréfið frá FME staðfesti málatilbúnað Smákrana. Einar staðfesti í samtali við Vísi að ekki hafi verið tekið mark á tilmælum FME þegar að Smákranar fengu sendan greiðsluseðil núna um mánaðamótin. Vísir gerði ítrekaðar tilraunir til þess að ná tali af framkvæmdastjóra Lýsingar fyrir helgi en þær reyndust árangurslausar. Kjartan Georg Gunnarsson, framkvæmdastjóri SP fjármögnunar, segir að í dreifibréfinu frá Fjármálaeftirlitinu felist ekki tilmæli sem séu lagalega bindandi. Það sé tekið skýrt fram í bréfinu. Núna sé fyrir dómstólum mál um fjármögnunarleigusamninga. Það sé stutt í niðurstöðu í því máli og þess dóms verði beðið, enda sé það dómurinn sem ráði endanlega. Hann bendir á að þó að Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn hafi sent tilmæli eftir að hæstaréttardómur féll 16. júní síðastliðinn hafi ekkert verið gert með þau fyrr en dómur um vaxtaprósentu fell í september. Kjartan segir að eftir sem áður standi mönnum til boða að semja við SP fjármögnun um úrræði ef þeir vilji lækka greiðslubyrði á sínum samningum þangað til að dómur fellur.
Tengdar fréttir FME vill að fyrirtæki greiði í samræmi við dóm Hæstaréttar Fjármálaeftirlitið beindi þeim tilmælum til lánastofnana á dögunum að meðferð fjármögnunarleigusamninga verði í samræmi við tilmæli sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gáfu út 30. júní síðastliðinn, eftir að dómur Hæstaréttar í gengistryggingarmálinu var kveðinn upp. 27. september 2010 15:12 Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira
FME vill að fyrirtæki greiði í samræmi við dóm Hæstaréttar Fjármálaeftirlitið beindi þeim tilmælum til lánastofnana á dögunum að meðferð fjármögnunarleigusamninga verði í samræmi við tilmæli sem Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn gáfu út 30. júní síðastliðinn, eftir að dómur Hæstaréttar í gengistryggingarmálinu var kveðinn upp. 27. september 2010 15:12