Viðskipti innlent

Nauðarsamningar Straums samþykktir

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Óttar Pálsson segir mikið fagnaðarefni að málið sé í höfn. mynd/ valli.
Óttar Pálsson segir mikið fagnaðarefni að málið sé í höfn. mynd/ valli.
Kröfuhafar Straums-Burðaráss fjárfestingabanka hf. samþykktu í dag nauðasamning fyrir félagið. Í samningnum felst að yfirráð félagsins færast yfir til almennra kröfuhafa sem umbreyta hluta af kröfum sínum í hlutafé og taka við skuldabréfi sem félagið gefur út.

Í tilkynningu frá Straumi kemur fram að eignum félagsins verður stýrt á komandi árum og þær seldar með það fyrir augum að hámarka endurheimtur kröfuhafa. Áætlanir geri ráð fyrir að tryggðir kröfuhafar, þ.e. íslenska ríkið og Íslandsbanki fái kröfur sínar greiddar að fullu. Almennir kröfuhafar geti hins vegar vænst þess að fá nálægt helmings endurheimtur. Með nauðasamningnum sé ennfremur lagður grunnur að áframhaldandi fjárfestingabankastarfsemi Straums á Íslandi innan sérstaks félags.

Óttar Pálsson, forstjóri Straums, segir það vera mikið ánægjuefni að nauðasamningur félagsins skuli nú vera í höfn og að um hann ríki sú almenna sátt






Fleiri fréttir

Sjá meira


×