Kaupir í Icelandair á lægra verði en lánadrottnar 14. júní 2010 17:47 Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group. „
Beinharðir peningar hafa meira vægi en skuldir," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, segir í samtali Vísir.is, um viðskipti sem tilkynnt var í dag. Framtakssjóður Íslands kaupir hlut í Icelandair Group, með 3 milljarða króna hlutafjáraukningu, á lægra verði en lánadrottnar fyrirtækisins, sem kaupa hlut með því að skuldbreyta lánum í hlutafé. Sjóðurinn kaupir á genginu 2,5 en stærstu lánveitendur fyrirtækisins breyta skuldum í hlutafé á genginu 5. Sjóðurinn kaupir 1,2 milljarða nýja hluti en bankarnir fá 720 milljón hluti fyrir að skuldbreytinguna. Björgólfur segir að það sé algengt í samningum sem þessum að fjárfestar sem komi með peninga inn í reksturinn fái betra verð en þeir sem breyti skuldum í hlutafé. Framtakssjóður Íslands, sem er í eigu 16 lífeyrissjóða, samdi um kaup á 30% hlut í Icelandair með því að leggja fyrirtækinu til 3 milljarða króna. Björgólfur segir að markmið hlutafjáraukningarinnar sé að bæta lausafjárstöðu fyrirtækisins og styrkja efnahagsreikninginn. Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu. Að þeim loknum verður eiginfjárhlutfallið ríflega 34% að sögn Björgólfs. Hann segir að það teljist mjög gott hjá flugfélögum um þessar mundir. Samhliða þessu er unnið að því að lengja í lánum. Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins.
Tengdar fréttir Framtakssjóður kaupir 30% hlut í Icelandair Framtakssjóður Íslands gerði í dag bindandi samkomulag við Icelandair Group um að Framtakssjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 3 milljarða króna. 14. júní 2010 16:22 Mest lesið Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Viðskipti innlent Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Viðskipti innlent Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Viðskipti innlent Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Viðskipti innlent Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hvernig get ég forðast netsvik? Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Viðskipti innlent Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Viðskipti erlent Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tíu ára forritari upplýsir um markaðsvirði pókémonspila Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru Bein útsending: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Kaldvík sett í skammarkrókinn í Ósló Flugmenn Air Atlanta hafa fellt nýjan kjarasamning í tvígang Hluthafar Brims seldu félaginu fyrir sex milljarða Ræða möguleika á næsta á fundi í kjaradeilu Icelandair Beint streymi: Framtíð matvælaframleiðslu á Íslandi Hvernig get ég forðast netsvik? Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Sjá meira
Framtakssjóður kaupir 30% hlut í Icelandair Framtakssjóður Íslands gerði í dag bindandi samkomulag við Icelandair Group um að Framtakssjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 3 milljarða króna. 14. júní 2010 16:22