Samskip er komið í eigu Ólafs Ólafssonar 28. janúar 2010 08:46
SMT (Samskip Management Team) Partners, sem er félag í eigu Ólafs Ólafssonar kaupsýslumanns og stjórnenda Samskipa, hefur eignast tæp 90% hlut í Samskipum með því að leggja til aukið hlutafé.Þetta kemur fram í ítarlegri umfjöllun um málið í Viðskiptablaðinu í dag. Þar segir að undanfarna mánuði hafa stjórnendur og eigendur Samskipa, sem hefur að stærstum hluta verið Kjalar, unnið að endurskipulagningu á fjárhag Samskipa með viðskiptabönkum félagsins. Þar er hollenski bankinn Fortis mikilvægastur en Arion banki, sem endurreistur var á grunni innlendra eigna gamla Kaupþings, er viðskiptabanki félagsins hér á landi.Viðskiptablaðið hefur ekki fengið uppgefið hversu mikið það er en Arion banki segir að engar skuldir hafi verið afskrifaðar.Stjórnendurnir sem eiga félagið með Ólafi, sem verið hefur stjórnarformaður og aðaleigandi Samskipa um árabil, eru Ásbjörn Gíslason, forstjóri Samskipa á Íslandi, Kristinn Albertsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, Hjörleifur Jakobsson stjórnarformaður Samskipa hf. og forstjóri Kjalars, og Jens Holger Nielsen, forstjóri Samskipa í Hollandi.Þá kemur fram í blaðinu að Kjalar var áður eigandi um 90% hlutar í félaginu. Staða Kjalars er óljós og er nú unnið úr eignum félagsins í samvinnu við lánardrottna félagsins. Ein stærsta eign Kjalars eru gjaldmiðlaskiptasamningar sem félagið gerði við Kaupþing á sínum tíma og er ágreiningur um uppgjör þeirra. Ef samningarnir verða gerðir upp eins og skilanefnd bankans vill er ljóst að félagið á enga framtíð vegna þess hve félagið er skuldugt og jafnvel þótt kröfur Kjalars nái fram að ganga þá verður félagið áfram í erfiðri stöðu.Í ljósi þess er það niðurstaða lánardrottna Kjalars að félagið hafi ekki burði til frekari þátttöku í Samskipum, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Auk þess er það ekki talið ákjósanlegt fyrir rekstraröryggi Samskipa að eignarhald sé í óvissu, hugsanlega næstu árin.Bankarnir Fortis og Arion töldu, eftir samningsferli með stjórnendum og hluthöfum, að Ólafur og samstarfsmenn hans gætu tryggt að lán til Samskipa yrðu greidd til baka. Bankarnir fóru fram á að lán til félagsins yrðu ekki afskrifuð, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins, heldur yrði lengt í lánum og tryggt að nýjir eigendur gætu ekki greitt arð út úr félaginu eftir eigin geðþótta.Fjárhagsleg staða Samskipa hefur verið þung og hafa kaup félagsins á erlendum félögum árið 2005 reynst því dýrpekypt. Eftir fjárhagslega endurskipulagningu er starfsemin talin standa traustum fótum, að því er segir í blaðinu.
Mest lesið Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Björguðu hamsatólginni: „Ég er algjörlega að stökkva út í djúpu laugina“ Neytendur Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Sjá meira