Yfir 6.000 félög skila ekki ársreikningi fyrir 2008 14. mars 2010 16:51
Alls eiga 6.171 starfandi félög á Íslandi eftir að skila ársreikningi vegna ársins 2008. Samkvæmt lögum um skil á ársreikningum, sem samþykkt voru fyrir tveimur árum, ber félögum að skila reikningum eigi síðar en átta mánuðum eftir lok reikningsárs. Sá frestur rann út í ágústlok í fyrra. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskiptablaðsins. Þar segir að á meðal félaga sem ekki hafa skilað ársreikningi eru stór fjárfestingarfélög sem áttu eignir sem bankarnir hafa verið með í fjárhagslegri endurskipulagningu. Þetta eru til dæmis félög eins og Kjalar, í eigu Ólafs Ólafssonar, og Gaumur, í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu hans. Skili félög ekki ársreikningum eru einu viðurlögin sem þau eru beitt fésektum að hálfri milljón króna. Ársreikningar eru einu opinberu gögnin sem sýna eignarstöðu félaga og því er hægt að halda henni leyndri með því að skila þeim ekki. Að sögn Huldu Sigmundsdóttur hjá Ársreikningaskrá er heildartala þeirra sem skila ekki reyndar mun hærri. „Alls hafa 8.778 félög ekki skilað ársreikningi vegna ársins 2008. Inni í þeirri tölu eru þó félög sem hafa orðið gjaldþrota eða búið er að afskrá. Ef þau eru dregin frá þá eru eiginleg vanskil hjá rúmlega sex þúsund félögum," segir hún í Viðskiptablaðinu.
Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira