Viðskipti innlent

Bankarnir eru með of mikil völd

Þóranna Jónsdóttir Lífeyrissjóðirnir eru í lykilaðstöðu til að koma atvinnulífinu í gang, að sögn framkvæmdastjóra Auðar Capital.
Þóranna Jónsdóttir Lífeyrissjóðirnir eru í lykilaðstöðu til að koma atvinnulífinu í gang, að sögn framkvæmdastjóra Auðar Capital.
„Völdin liggja hjá bönkunum, sem hafa leyst til sín mikið af fyrirtækjum. Þar virðast hlutirnir sitja fastir. Það er viðskiptalífinu ekki til framdráttar,“ segir Þóranna Jónsdóttir, framkvæmdastjóri hjá verðbréfafyrirtækinu Auði Capital.

Auður Capital rekur fagfjárfestasjóðinn Auði 1, sem keypti fjölda fyrirtækja á árinu sem er að líða. Þar á meðal fjarskiptafyrirtækið Tal, upplýsingaveituna Já, matvöruverslunina Mann lifandi og hlut í Ölgerðinni.

Þóranna bendir á að mörg fyrirtæki glími við erfiða skuldsetningu. Leggja þurfi mörgum fyrirtækjum til nýtt hlutafé og kröfuhafar þeirra að færa skuldir niður. Bankarnir eru tregir til þess, að sögn Þórönnu.

„Mjög fáir ráða við að greiða bönkunum að fullu eða taka við rekstri fyrirtækja með þeirri skuldsetningu sem á þeim hvílir. Því kjósa bankarnir frekar að halda í fyrirtækin en að losa sig við þau,“ segir Þóranna og bætir við að í sumum tilvikum hafi bankarnir byggt upp starfsemi í kringum eignarhaldið. Slíkt sé ekki jákvætt enda tefji það fyrir endurreisninni.

Þóranna segir bankana ekki heppilega fyrirtækjaeigendur. Vandinn sé sá að engin eiginleg samkeppni sé á bankamarkaði. Við slíkar aðstæður hreyfist allt hægt. Hún segir lífeyrissjóðina í lykilstöðu, þeir séu einir af fáum sem ráði yfir nægilegu fjármagni nú um stundir til að koma atvinnulífinu af stað.

„Lífeyrissjóðir eru í einstakri stöðu til að knýja á um bættar áherslur í viðskiptalífinu með því að setja skýrar kröfur um arðsemi fjárfestinga, til þeirra sem fara fyrir fé, og leggja áherslu á gagnsæi, góða stjórnarhætti og gott viðskiptasiðferði. Mörg fyrirtæki eru nú þegar að taka frumkvæði í þessum efnum og því eru tækifærin til staðar,“ segir hún. - jab





Fleiri fréttir

Sjá meira


×