Þarf ekki að taka við stórri lóð 11. nóvember 2010 21:21 Mynd/Vilhelm Gunnarsson
Reykjavíkurborg er ekki skyldug til að taka við stórri lóð undir atvinnuhúsnæði í Hádegismóum, samkvæmt nýföllnum dómi Hæstaréttar. Dómurinn, sem er fordæmisgefandi, kann að hafa áhrif á réttindi lóðarhafa sem vilja skila lóðum sínum vegna brostinna forsendna. Hugur ehf. höfðaði málið gegn Reykjavíkurborg en fyrirtækið vildi skila 17 þúsund fermetra lóð sem það hafði fengið úthlutað undir atvinnuhúsnæði við Hádegismóa 5 í september árið 2007 og krafðist jafnframt tæplega 300 milljóna króna sem fyrirtækið greiddi fyrir byggingarrétt á lóðinni. Þá krafðist fyrirtækið viðurkenningar á skaðabótaskyldu borgarinnar fyrir mismunun með því að hafa brotið á fyrirtækinu rétt fyrir að neita að taka við lóðinni. Í dómi Hæstaréttar segir að hvergi í skilmálum hafi verið kveðið á um heimild til að krefjast einhliða skila á lóðinni. Fyrirtækið hefði aðeins haft slíka heimild ef um vanefnd hefði verið að ræða hjá borginni sem skipt hefði máli fyrir hagsmuni fyrirtækisins en því hafi ekki verið til að dreifa. Hæstiréttur telur að ekki hafi verið fyrir hendi brostnar forsendur til að krefjast riftunar og að málefnalegar forsendur hafi legið að baki þeirri ákvörðun borgarinnar um að hafna beiðnum um skil á lóðum undir atvinnuhúsnæði sem borist höfðu eftir 1. október 2008. Þá hafi borgin gætt jafnræðis því eins hafi verið farið með allar beiðnir um lóðarskil eftir þann tíma. Dómurinn er fordæmisgefandi og mun hugsanlega hafa áhrif á réttindi annarra lóðarhafa, til dæmis í Úlfarsárdal, sem reynt hafa að skila lóðum sínum.
Mest lesið Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira