Fjármagnskostnaður ríkisins snarminnkar 9. desember 2010 11:56
Fjármagnskostnaður af hverjum milljarði sem ríkissjóður seldi í ríkisbréfaútboði gær var einungis þriðjungur af því sem ríkið þurfti að reiða af hendi fyrir fjármögnun af svipuðu tagi í upphafi árs. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að með ríkisbréfaútboðinu í gær hefur ríkissjóður náð markmiðum sínum hvað útgáfu ríkisbréfa varðar og má fullyrða að lánsfjármögnun hans á innlendum markaði þetta árið hafi reynst mun hagstæðari en flestir höfðu gert ráð fyrir. Smiðshöggið var rekið á ríkisbréfaútgáfuna með sölu á RIKB12-flokknum fyrir ríflega 5,2 milljarða kr. í gær, en alls bárust tilboð að upphæð 8,2 milljarða kr. í flokkinn. Raunar hefði mátt gera ráð fyrir meiri spurn eftir honum í ljósi þess að lokagjalddagi á stórum ríkisbréfaflokki, RIKB1012, stendur fyrir dyrum, en þann flokk eiga erlendir fjárfestar að langmestu leyti. Hins vegar getur ríkissjóður tæpast kvartað yfir niðurstöðukröfu útboðsins. Hún var 2,37%, en til samanburðar var niðurstöðukrafan í síðasta útboði með flokkinn 3,9% og var þá lægsta ávöxtunarkrafa frá fæðingu flokksins í ágúst síðastliðnum. Lánamál tilkynntu í gær að hætt hefði verið við útboð ríkisbréfa sem áætlað hafði verið að halda þann 17. desember næstkomandi, enda hefur útgáfuáætlun nú verið náð. „Líklega hefur fáa grunað í upphafi ársins að ríkissjóður myndi standa frammi fyrir jafn hagstæðri fjármögnun á innlendum markað þegar á árið leið og raun bar vitni. Má þar rifja upp að í fyrsta útboði ársins í febrúarbyrjun á RIKB11-flokknum, sem hafði þá ekki ósvipaðan binditíma og RIKB12-flokkurinn hefur í dag, var niðurstöðukrafan 7,34%," segir í Morgunkorninu. „Fjármagnskostnaður af hverjum milljarði sem ríkissjóður seldi í gær var því einungis þriðjungur af því sem ríkið þurfti að reiða af hendi fyrir fjármögnun af svipuðu tagi í upphafi árs. Hljóta það að teljast jákvæð tíðindi fyrir skattgreiðendur, þótt fjármagnseigendur minnist væntanlega hárrar ávöxtunar liðinna missera með nokkrum söknuði."
Mest lesið „Flestir sem eru á þessum lista eru dánir“ Neytendur Stóra apasjálfu-málið vekur upp enn fleiri spurningar Atvinnulíf Löggan bankaði upp á á skírdag Neytendur Mælir með eistnesku poppi til að vekja börnin almennilega Atvinnulíf Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Viðskipti innlent Brauð með súr ekki það sama og súrdeigsbrauð Neytendur Færðu Finnum Jónsbók Viðskipti innlent Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Viðskipti innlent Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Viðskipti innlent B12 Space gjaldþrota Viðskipti innlent Fleiri fréttir Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Hvað spara börnin mín á því að sleppa bílakaupum? „Þetta er ekki græðgi“ Semja um kaup Lyfju á Borgarapóteki Spá Íslandi áfram í topp tíu í landsframleiðslu Ráðin nýr sjálfbærnistjóri Póstsins Sprotafyrirtæki í alvarlegri stöðu Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Ferro zinks og Metals Eldsneytisbirgðastaða Icelandair góð en fylgst er með stöðunni Fyrsta skemmtiferðaskipið mætt Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Sjá meira