Leiguverð í borginni hefur hækkað um allt að 17% frá áramótum 29. júlí 2010 11:16
Samkvæmt nýrri könnun Neytendasamtakanna hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað síðan í byrjun árs og nemur hækkunin allt að 17% fyrir stærstu íbúðirnar sem auglýstar eru til leigu. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að þannig leiði könnun Neytendasamtakanna í ljós að fimm herbergja íbúðir voru í júlí auglýstar til leigu fyrir að meðaltali 1.253 kr á hvern fm. en í febrúar var meðalverð 1.066 kr. Samkvæmt þessu kostaði 170.000 krónur á mánuði að leigja 160 fm íbúð í febrúar en 200.000 krónur nú og nemur hækkunin sem fyrr segir 17%. Þá hækkaði leiguverð á stúdíóíbúðum um 7% á sama tímabili, leiga á þriggja herbergja íbúðum um 4,5% og leiguverð á fjögurra herbergja íbúðum um 4%. Hinsvegar lækkaði leiguverð fyrir tveggja herbergja íbúðir á tímabilinu um 2%. Íbúðirnar sem könnunin tók til voru auglýstar til leigu hjá helstu leigumiðlunum landsins og voru allt íbúðir á frjálsum markaði. Neytendasamtökin hafa rannsakað leiguverð reglulega undanfarin tvö ár og leiguverðið nú er hærra en það var þegar fyrsta könnunin var gerð í apríl 2008. Algengt er að leigusamningar séu vísitölutryggðir sem þýðir að leiguverðið þróast í takti við verðlag en frá áramótum talið hefur verðlag hækkað um 1,3% sem skýrir því aðeins hluta af þessari hækkun. Líklegra er að hér sé lögmál framboðs og eftirspurnar að verki en eins og kunnugt er hefur spurn eftir leiguhúsnæði margfaldast frá hruni. Á fyrstu 6 mánuðum ársins voru gerðir 4.565 leigusamningar sem er fjölgun um 86% frá sama tímabili árið 2008 samkvæmt upplýsingum Þjóðskrár Íslands. Sóknin í leiguhúsnæði var sérlega mikill á síðasta ári en hefur nú aðeins dregist saman á nýjan leik. Sóknin er þó enn mjög mikil en til að mynda voru í júní síðastliðnum alls 834 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst sem er tæplega 24% fleiri en í mánuðinum á undan og 3% fleiri en í sama mánuði 2009.
Mest lesið „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Samstarf Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér Atvinnulíf Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Samstarf Spá enn vaxtahækkun í maí Viðskipti innlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Samstarf Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Viðskipti innlent Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði Viðskipti innlent Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Viðskipti innlent Nýr forstjóri Deloitte fundinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Sjá meira