Ný framkvæmdastjórn skipuð hjá Byr 10. júní 2010 13:57
Síðastliðna daga og vikur hefur verið unnið að því að móta framtíð Byrs og er nýtt skipurit, ný framkvæmdastjórn og stefnumótun fyrir félagið liður í því starfi samkvæmt tilkynningu frá Byr. Þar segir svo orðrétt: Allt miðar þetta að því að efla Byr og gera hann að vænlegum kosti sem fjármálafyrirtæki fyrir einstaklinga, fjölskyldur og fyrirtæki. Forstjóri Byrs er Jón Finnbogason sem hefur stýrt Byr frá því í nóvember 2009. Auk hans skipa framkvæmdastjórn félagsins þau Herdís Pála Pálsdóttir, Einar Birkir Einarsson, Regína Fanný Guðmundsdóttir og Björn Björnsson. Öll hafa þau gegnt ábyrgðarstöðum hjá Byr sparisjóði um nokkurt skeið og þekkja því félagið mjög vel. Áhættustýringu hefur einnig verið gefið aukið vægi en sviðið hefur verið stóreflt frá því sem áður var auk þess sem lánareglur og aðrar reglur hafa verið endurgerðar. Þá hafa skýrari mörk verið sett á milli framlínusviðs og bakvinnslu með það að leiðarljósi að þjónusta viðskiptavini Byrs enn betur. Starfsfólk Byrs vinnur nú að því að móta framtíðarsýn Byrs á grunni stefnumótunarvinnu sem hófst fyrir nokkru. Markmiðið með stefnumótunarvinnunni er að greina betur starfsemina og hvernig starfsfólkið sér Byr fyrir sér í framtíðinni. Auk þess að móta stefnu mun starfsfólk endurskoða þau gildi sem nú eru til staðar og greina betur þarfir viðskiptavina. Eru viðskiptavinir Byrs hvattir til að taka þátt í þessari vinnu með starfsfólkinu með því að fara á heimasíðu félagsins, www.byr.is og senda inn ábendingar um það sem betur má fara. Miklar vonir eru bundnar við að þessi vinna skili viðskiptavinum Byrs, starfsmönnum og helstu hagsmunaaðilum fyrirtæki sem allir geta verið stoltir af.
Mest lesið Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Viðskipti innlent Umsóknum synjað og kurr í greininni Viðskipti innlent Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Viðskipti innlent Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Viðskipti innlent Jóhann Ingi til Securitas Viðskipti innlent Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Viðskipti innlent Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Viðskipti innlent Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Viðskipti innlent Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Viðskipti erlent Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Stuggað við einokun á hljóðbókamarkaði „Það sér hver heilvita maður að það er algjör tímaskekkja“ Forvarnarsamtök fagna en vínsalar láta dóminn ekki stoppa sig Ein belja varð Vilhjálmi í Smáríkinu að falli Krefja Björgólf og Birgi um hundruð milljóna vegna njósnanna Þrettán prósent hækkun á bensíni að mestu vegna Íransstríðs Taka loks við reiðufé tuttugu mánuðum frá opnun Ballið búið hjá Húrra Reykjavík Hvað á að gera við fermingarpeningana? Farþegum fjölgaði á milli ára í mars Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Sjá meira