Viðskipti innlent

Umtalsverð veltuaukning á íbúðamarkaðinum í haust

Veltan á íbúðamarkaði hefur aukist umtalsvert undanfarið. Gerðir voru 281 kaupsamningar um íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í nóvembermánuði samanborið við 207 samninga í sama mánuði í fyrra og hefur veltan því aukist um 36% milli ára.

Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að heildarveltan í nóvember nam 7,4 milljörðum kr. og var því meðalupphæð hvers samnings sem gerður var í nóvember 26,4 milljónir kr. Endurspeglar það að veltan var langmest með íbúðir í fjölbýli.

Veltan á íbúðamarkaði hefur verið lífleg á haustmánuðum sem virðist benda til þess að botninum sé náð á íbúðamarkaði og ekki sé langt í að viðsnúningur náist. Metvelta frá hruni var í septembermánuði síðastliðnum þegar kaupsamningar voru 347 talsins. Þá voru samningar í október 296 talsins sem var aukning um 40% frá sama mánuði fyrra árs.

Samanlögð velta síðustu þriggja mánaða nam 924 samningum sem er aukning um 43% frá sama tímabili fyrra árs. Samhliða þessari aukningu í veltu hefur verð á íbúðum verið að hækka en samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands hefur íbúðaverð á landinu öllu hækkað um 1,1% undanfarna 3 mánuði.

Greiningin telur að ástæða uppsveiflunnar á fasteignamarkaðinum sé vegna þess hve fáir fjárfestingarkostir eru í boði. Því séu fjársterkir aðilar að koma inn á íbúðamarkaðinn.

„Það sem rennir frekari stoðum undir þá kenningu að það séu fjársterkir aðilar sem leiti inn á íbúðamarkaðinn núna í leit að arðsemi og eignadreifingu er að makaskiptasamningum hefur fækkað verulega upp á síðkastið," segir í Morgunkorninu.

„Í nóvember síðastliðnum var hlutafall makaskiptasamninga aðeins 9% en var 30% fyrir ári síðan. Með makaskiptasamningum er átt við kaupsamning þar sem hluti kaupverðs er greiddur með annarri fasteign. Makaskiptasamningar hafa verið mjög algengir í íbúðaviðskiptum frá hruni en undanfarin misseri hefur nánast þriðjungur heildarviðskipta með íbúðir verið afgreidd með makaskiptasamningum þar til nú þegar aftur hefur dregið úr tíðni makaskiptasamninga."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×