Nægjanlegur gjaldeyrisforði fyrir afnámi hafta 30. september 2010 12:21
Greining Íslandsbanka segir að komi allur gjaldeyrinn í höfn sem gert er ráð fyrir við þriðju endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins styrkist gjaldeyrisforði Seðlabankans um 620 milljónir evra eða 96 milljarða kr. Verður forðinn þá 2,3 milljarðar evra að frádregnum skammtímaskuldbindingum.Seðlabankinn telur það nægjanlegan forða til að hægt sé að hefja afnám gjaldeyrishafta en það kom fram við síðustu vaxtaákvörðun bankans fyrir hálfum mánuði síðan og í ræðu Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á aðalfundi samtaka fiskvinnslustöðva í síðustu viku.Greining fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Þar segir að fulltrúar AGS virðast vera á sama máli, en Murilo Portugal aðstoðar framkvæmdastjóri AGS segir í tilkynningu sem gefin var út í gær í tengslum við endurskoðunina að styrking gjaldeyrisforðans sé forgangsatriði þar sem hún undirbúi jarðveginn fyrir afnámi gjaldeyrishaftanna.Þá sagði Mark Flanagan, formaður sendinefndar AGS á Íslandi, í fréttum í gær að fyrsta skrefið í afnámi haftanna verði líklega stigið á næstu mánuðum þar sem skilyrði um nægjanlegan forða sé nú uppfyllt, en hann leggur áherslu á að það verði stigið varlega til jarðar í þeim efnum. Nægur gjaldeyrisforði er þó ekki eina skilyrðið sem þarf að uppfylla áður en afnám haftanna getur hafist.Mark Flanagan minnti á að stöðugleiki fjármálakerfisins þyrfti einnig að vera tryggður, sem er í takti við það sem Seðlabankastjóri sagði í síðustu viku á fyrrnefndum aðalfundi samtaka fiskvinnslustöðva en ræðan var birt á vef Seðlabankans í gær.Í ræðunni segir Már að þrátt fyrir að skilyrðið um nægjanlegan gjaldeyrisforða sé uppfyllt sé það misskilningur ef einhver heldur að tíminn í þessu sambandi sé talinn í vikum fremur en mánuðum. Hann segir að bæði taki það tíma að fá gjaldeyrinn í hús eftir þriðju endurskoðunina og að líklega verði ekki hægt að kveða upp úr um heilsufar bankanna gagnvart afnámi hafta fyrr en undir lok nóvember.Már segir hins vegar að næstu skrefi í afnámi haftanna færist þó sífellt nær í tíma, að því gefnu að ekkert óvænt komi upp á, og að undirbúningurinn sé í gangi innan Seðlabankans.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira