Viðskipti innlent

Staða ríkisbréfa tvöfaldast milli ára

Staða ríkisbréfa nam 317,8 milljörðum kr. í lok nóvember s.l., samanborið við 167,5 milljarða kr. í sama mánuði árið áður.

Þetta kemur fram í hagtölum Seðlabankans. Þar segir að staða markaðsskuldabréfa í lok nóvember 2009 nam 1.444 milljörðum kr. og hækkaði um 0,67 milljarða kr. í mánuðinum, samanborið við lækkun upp 82,6 milljarða kr. í mánuðinum á undan.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×