Neytendur enn fremur svartsýnir Jón Hákon Halldórsson skrifar 30. mars 2010 12:23 Kringlan er oft fjölsótt þrátt fyrir litlar væntingar neytenda. Mynd/ Daníel.
Íslenskir neytendur eru enn langt í frá því að teljast vera bjartsýnir á horfur í efnahags- og atvinnumálum ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var í morgun. vísitalan var 43,2 stig í mars og lækkar um 3 stig á milli mánaða. Greining Íslandsbanka segir að vísitalan sé nokkuð hærri en hún hafi að jafnaði verið frá hruni bankanna og því sé eitthvað bjartara yfir landanum nú en undanfarin misseri. Greining segir að mat á núverandi ástandi í efnahags- og atvinnumálum haldist nánast óbreytt frá síðustu mælingu og mælist áfram afar lágt, eða 7,9 stig. Væntingar til ástandsins í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði versna á hinn bóginn um 5 stig, eða úr 71,8 stigum í 66,8 stig. Því sé ljóst að minni væntingar til ástandsins eftir 6 mánuði skýri lækkun vísitölunnar nú sem sé öfugt við það sem verið hefur í mælingum síðustu mánuði en þá hafi væntingar til ástandsins eftir 6 mánuði leitt til þess að vísitalan hefur hækkað enda hefur mat á núverandi ástandi haldist nokkuð stöðugt síðustu misseri líkt og nú. Könnun Gallup bendir til að tæplega 82% svarenda telji að efnahagsástandið sé slæmt um þessar mundir og rúm 54% þeirra telji að atvinnumöguleikar séu litlir. Þá telji rúm 38% svarenda að efnahagsástandið verði verra eftir 6 mánuði og um 26% að atvinnumöguleikarnir verði minni eftir þann tíma. Þetta eru nokkuð hærri hlutföll en niðurstöður könnunnar Gallup leiddu í ljós í febrúarmánuði en þá töldu um 34% svarenda að efnahagsástandið yrði verra eftir 6 mánuði og um 23% að atvinnumöguleikar yrðu minni eftir þann tíma. Þó telja færri nú en í febrúar að tekjur heildartekjur þeirra muni lækka á næstu 6 mánuðum, eða um 29,4% á móti 33,5%.
Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira