Segir bleikjueldi Samherja vaxa hratt 2. júní 2010 11:02 Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja. „
Markaðssetning er kostnaðarsöm og eitt árið var 19% af veltunni varið til markaðs- og kynningastarfs á bleikjunni sem var og er víða óþekkt vara," sagði Jón Kjartan Jónsson, framkvæmdastjóri fiskeldis Samherja, á almennum atvinnumálafundi fyrirtækisins á Akureyri. Bleikjueldi er vaxandi þáttur í fjölþættri starfsemi Samherja. Þetta kemur fram í frétt LÍÚ. Heimsmarkaðurinn fyrir þessa afurð er hins vegar smár eða um fimm þúsund tonn. Til samanburðar má geta þess að heimsmarkaðurinn fyrir lax er um tvær milljónir tonna. Nærri lætur að Samherji framleiði 40% allrar bleikju á heimsmarkaði, segir í fréttinni. Framleiðslan hefur vaxið hratt hjá fyrirtækinu, úr 100 tonnum í 2000 á skömmum tíma „án þess að lækka verð á ferskum afurðum," segir Jón. Um 60 manns vinna við eldið auk þess sem 15 manns vinna við flökun hjá Eðalfiski í Borgarnesi. Um 70% af afurðum fyrirtækisins er flogið til Bandaríkjanna, þar sem Whole Foods matvöruverslanakeðjan er einn af stóru viðskiptavinunum. Jón segir markaðssetninguna á bleikjunni hafa verið mjög dýra en hún hefði skilað árangri. Hann segir fiskeldi krefjast þolinmæði og fjármagns. Ferlið frá hrognum til sölu afurðar sé að lágmarki 27 mánuðir með stöðugum útgjöldum án þess að króna komi í kassann á móti. „Þetta hófst sem lítið gæluverkefni innan fyrirtækisins en fer vonandi að verða sjálfstætt. Við höfum stýrt þessu öllu hér innanhúss; eldi, framleiðslu svo og markaðs- og kynningarstarfi. Rétt markaðssetning á bleikjunni hefur skapað þessari vöru ímynd hágæðavöru, sem afurðin rís vel undir," segir Jón Kjartan í frétt LÍÚ.
Mest lesið Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Erlent félag kaupir Samskip Viðskipti innlent Guðný Helga tekur við af Haraldi Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Bjóða fjórðungi starfsfólks Microsoft starfslokasamninga Viðskipti erlent Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Viðskipti innlent Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Viðskipti innlent Norskir fjölmiðlar í hart við Meta Viðskipti erlent Greiða hundruð milljóna króna sekt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Erlent félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Sjá meira