Ekki viðeigandi að skulda í skilanefnd 23. febrúar 2010 06:00 Skrifað undir eignarhald á íslandsbanka. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, fremstur á myndinni, vissi ekki fyrr en í gær um fjárhagsstöðu fjögurra félaga tengdum einum skilanefndarmanna. Fréttablaðið/anton „
Ef þetta er staðan er hún áhyggjuefni og ekki viðeigandi," segir Gunnar Andersen, forstjóri Fjármálaeftirlitsins (FME) um skuldir fjögurra félaga Heimis V. Haraldssonar endurskoðanda. Þau skulduðu samtals 1,2 milljarða króna í lok árs 2008, að mestu við Landsbankann. Heimir hefur setið í skilanefnd Glitnis frá því Fjármálaeftirlitið tók lyklavöldin í bankanum fyrir um sautján mánuðum. Gunnar tekur fram að þetta eigi almennt við um fjárhagsstöðu og skuldbindingar þeirra sem sitji í skilanefndum. Af félögunum Heimis stendur einkahlutafélagið Safn verst. Það tapaði rúmum 1.468 milljónum króna árið 2008 og var eigið fé þess neikvætt um 576,3 milljónir. Á sama tíma námu skuldir 771 milljón króna umfram peningalegar eignir og bókfært eigið fé. Félagið fjárfestir í erlendum hlutabréfum. Heimir er skráður fyrir 27 prósenta hlut í Safni en afganginn eiga félögin Fjármagn og Nafn. Þau eru öll skráð á hann. Fjórða einkahlutafélag Heimis er ráðgjafarfyrirtækið Safn ráðgjöf. Félögin voru stofnuð á árunum 1995 til 2003 að því síðasttalda undanskildu. Það var stofnað í desember 2008 og tapaði 87 þúsund krónum á árinu en skuldaði 86 milljónir króna í lok árs. Heildarskuldir félaganna fjögurra námu rúmum 1,2 milljörðum króna. Eignir námu 723,4 milljónum króna og var eigið fé þeirra neikvætt um 492,7 milljónir króna í lok árs. „Það sem mestu skiptir er að engar skuldir eru við Glitni eða Íslandsbanka," segir Heimir, sem stóð til boða að taka sæti í skilanefnd Landsbankans við ríkisvæðingu bankanna. Því hafnaði hann vegna hagsmunaárekstra. Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis, kannaðist ekki við skuldastöðu félaga Heimis þegar hann var inntur eftir því í gær. Hann segir Fjármálaeftirlitið hafa farið yfir fjárhagslega stöðu skilanefnda að einhverju leyti í kringum hrun bankanna. Hann gat ekki sagt til um hversu ítarleg sú skoðun var. Þeir sem rætt hefur verið við segja skilanefndir hafa verið myndaðar í óðagoti og lítill tími gefist til skoðunar á fjárhagsstöðu skilanefndafólks. Skilanefndir hafi sjálfar átt frumkvæðið að því að greina frá hagsmunum sínum gagnvart bönkunum. FME setti skilanefndirnar saman í október 2008 og hafði eftirlit með þeim til loka apríl í fyrra þegar ný lög voru sett um þær. Í kjölfarið færðist valdið yfir til kröfuhafa og þurfa skilanefndir að standa skil á öllu sínu gagnvart óformlegu kröfuhafaráði. Það hefur takmarkað vald, eftir því sem næst verður komist. jonab@frettabladid.is
Mest lesið Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Viðskipti innlent Eftirlitið veður í Veðurstofuna Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Vaxtaverkir í golfi: Kylfingum fjölgar um þúsundir á ári Atvinnulíf Ben kveður Jerry Viðskipti erlent Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Viðskipti innlent Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Viðskipti innlent „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Neytendur Vara við díoxíni í Landnámseggjum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Play sé ekki að fara á hausinn Fór yfir breytingarnar sem verði ekki allar þægilegar fyrir starfsfólk Framkvæmdastjórar kveðja og sviðum stokkað upp Sammála um aukna verðbólgu í september Tekur við stöðu framkvæmdastjóra LÍS Kristín nýr framkvæmdastjóri Eflu Sjá meira