Ekki eins svart yfir landsmönnum og undanfarið 23. febrúar 2010 11:53
Ekki var jafn svart yfir landanum nú í febrúar og hefur að jafnaði verið síðustu misseri ef marka má niðurstöður könnunnar Capacent Gallup á væntingum íslenskra neytenda sem birt var nú í morgun. Þannig hækkaði Væntingavísitala Gallup um 9 stig í febrúar frá fyrri mánuði, eða úr 37,1 stig í 46,2 stig, og er gildi vísitölunnar nú það næsthæsta sem það hefur verið síðan í október 2008.Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að auk þess er þetta fjórði mánuðurinn í röð sem vísitalan hækkar miðað við sama tíma fyrir ári en í febrúar í fyrra mældist vísitalan 24,3 stig. Er því ljóst að íslenskir neytendur telja ástandið nú ekki jafn slæmt og fyrir ári og ekki eins svart og það hefur að jafnaði verið frá hruni bankanna.Mat á núverandi ástandi í efnahags- og atvinnumálum lækkar um tæpt stig milli mánaða og mælist áfram afar lágt, eða 7,7 stig. Hins vegar glæðast væntingar töluvert til ástandsins í efnahags- og atvinnumálum eftir 6 mánuði og hækka um tæp 16 stig milli mánaða, eða úr 56,1 stigum í 71,8 stig. Er því ljóst að auknar væntingar til ástandsins eftir 6 mánuði skýra hækkun vísitölunnar nú, líkt og síðustu mánuði, enda hefur mat á núverandi ástandi haldist nokkuð stöðugt síðustu misseri og þá mælst afar lágt.Rúmlega 80% svarenda telja að efnahagsástandið sé slæmt um þessar mundir og tæp 53% þeirra telur að atvinnumöguleikar séu litlir. Þá telja um 34% svarenda að efnahagsástandið verði verra eftir 6 mánuði og um 23% að atvinnumöguleikarnir verði minni eftir þann tíma. Þetta eru mun lægra hlutföll en niðurstöður könnunnar Gallup leiddu í ljós í janúarmánuði en þá töldu um 44% svarenda að efnahagsástandið yrði verra eftir 6 mánuði og um 31% að atvinnumöguleikar yrðu minni eftir þann tíma. Þriðjungur svarenda nú telur að heildartekjur þeirra muni lækka á næstu 6 mánuðum.
Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Gervigreindin: „Ég hef bara aldrei upplifað aðra eins breytingu“ Atvinnulíf Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira