Viðskipti innlent

Höftin eiga að hverfa

Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, stýrði umræðum á fundi Viðskiptaráðs í gær. Í pallborði voru Arnór Sighvatsson, Kristín Pétursdóttir, Benedikt Jóhannesson og Ásgeir Jónsson. fréttablaðið/valli
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallarinnar, stýrði umræðum á fundi Viðskiptaráðs í gær. Í pallborði voru Arnór Sighvatsson, Kristín Pétursdóttir, Benedikt Jóhannesson og Ásgeir Jónsson. fréttablaðið/valli

Stjórn efnahagsmála verður að bregðast illilega til þess að gjaldeyrishöftum verði hér við haldið um lengri tíma. Þetta er meðal þess sem fram kom í máli Más Guðmundssonar seðlabankastjóra á fundi Viðskiptaráðs Íslands í gærmorgun. Hann sagði höftin hafa gegnt hlutverki í að ná stöðugleika en þau væru nú farin á rekast á önnur markmið, svo sem um aukinn hagvöxt, fjárfestingu og tengingu landsins við aðra fjármálamarkaði.

Um leið kom fram í máli Más að ekki væri hægt að útiloka að Alþingi samþykkti að framlengja gjaldeyrishöftin á næsta ári, en samkvæmt lögum rennur gildistími þeirra út í ágúst 2011.

Fulltrúar í pallborði lýstu margir hverjir efasemdum um að hægt yrði að aflétta höftum í bráð, enda hefðu þau staðið í áratugi í einhverri mynd áður en þeim var aflétt á tíunda áratug síðustu aldar.

Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri sagði aðstæður í dag hins vegar aðrar á tímum alþjóðlegra viðskipta og því afar ólíklegt að höftin vörðu lengi. „Svo lengi sem við erum aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu sé ég ekki fyrir mér að við getum verið lengi með höftin," sagði hann og benti á að þeim yrði ekki viðhaldið nema í skjóli samþykktar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hann benti á að efnahagsáætlun stjórnvalda rynni út í ágúst á næsta ári og ekki seinna en þá þyrfti að liggja fyrir tímasett áætlun um afnám hafta.

Arnór sagði jafnframt ljóst að ef þjóðin hafnaði aðild að Evrópusambandið þyrfti að bæta framkvæmd peningastefnunnar. „Við þurfum einhvers konar viðbótartæki til viðbótar við vaxtatækið til að minnka veltinginn," sagði hann en taldi „draumóra" að gera ráð fyrir því að sveiflur á gengi krónunnar hyrfu.

olikr@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×