Útgjöld hins opinbera hafa aukist gífurlega á síðustu 30 árum 23. febrúar 2010 09:07
Frá árinu 1980 hafa útgjöld hins opinbera vaxið um nálægt 11 prósentustig af landsframleiðslu eða úr 34,1% af landsframleiðslu í 44,8% árið 2008. Á sama tíma jukust útgjöld ríkissjóðs úr 27,5% af landsframleiðslu árið 1980 í 32,2% árið 2008 og útgjöld sveitarfélaga úr 7,1% af landsframleiðslu 1980 í 14,0% 2008.Greint er frá þessu á vefsíðu Hagstofunnar en út eru komin Hagtíðindi í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um útgjaldaþróun hins opinbera, þ.e. ríkis, sveitarfélaga og almannatrygginga. Meginmarkmið ritsins er að gefa yfirlit um umfang og þróun útgjalda hins opinbera á árunum 1998-2008.Af helstu niðurstöðum má nefna að frá árinu 1980 hafa útgjöld hins opinbera vaxið um nálægt 11 prósentustig af landsframleiðslu eða úr 34,1% af landsframleiðslu í 44,8% árið 2008 (192 milljarða króna yfirtaka ríkissjóðs á töpuðum kröfum Seðlabanka Íslands 2008 er þá ekki meðtalin).Á sama tíma jukust útgjöld ríkissjóðs úr 27,5% af landsframleiðslu árið 1980 í 32,2% árið 2008 og útgjöld sveitarfélaga úr 7,1% af landsframleiðslu 1980 í 14,0% 2008. Mikill vöxtur í útgjöldum sveitarfélaga skýrist m.a. af yfirtöku verkefna frá ríkissjóði (eins og grunnskólans) en einnig hefur þjónusta þeirra vaxið jafnt og þétt. Útgjöld almannatrygginga hafa hins vegar vaxið minna á þennan mælikvarða eða úr 6,8% af landsframleiðslu 1980 í 7,4% árið 2008.Á föstu verðlagi (miðað við verðvísitölu samneyslunnar) hafa útgjöld hins opinbera vaxið úr 1.087 þúsund krónum á mann árið 1980 í 2.071 þúsund króna árið 2008 (án yfirtöku) og því nánast tvöfaldast (91% vöxtur) á mann á þessu tímabili.Á sama tíma jukust útgjöld ríkisjóðs úr 875 þúsund krónum á mann í 1.492 þúsund krónur 2008 (án yfirtöku) og er raunvöxturinn rúmlega 70%. Útgjöld sveitarfélaga á mann hafa aukist mun meira eða nánast þrefaldast (185% vöxtur) á tímabilinu á þennan mælikvarða. Útgjöldin námu 226 þúsund krónum á mann 1980 en voru 646 þúsund krónur árið 2008. Útgjöld almannatrygginga hafa vaxið úr 217 þúsund krónum á mann 1980 í 341 þúsund krónur árið 2008 og er raunvöxturinn því 57% á umræddu tímabili.Almannatryggingar og velferðarmál hafa verið fjárfrekasti málaflokkur hins opinbera undanfarna áratugi en útgjöld til hans námu 132 milljörðum króna árið 2008 eða 8,9% af landsframleiðslu, en það svarar til rúmlega 307 þúsund króna á hvert mannsbarn í landinu. Til samanburðar námu útgjöldin 7,7% af landsframleiðslu 1998 eða 238 þúsund króna á mann á verðlagi 2008.Til fræðslumála hins opinbera runnu um 124 milljarðar króna árið 2008 eða 8,4% af landsframleiðslu og hafa útgjöldin hækkað um eitt prósentustig af landsframleiðslu síðustu tíu árin. Til heilbrigðismála hins opinbera var ráðstafað ríflega 117 milljörðum króna 2008 eða um 8% af landsframleiðslu, sem er heldur hærra hlutfall en ráðstafað var til þessa málaflokks árið 1998.Ofangreindir þrír málflokkar hins opinbera, almannatrygginga og velferðarmála, fræðslumála og heilbrigðismála eru viðamestir og tóku til sín 25,3% af landsframleiðslu ársins 2008, en voru 22,6% af landsframleiðslu árið 1998.
Mest lesið Eins og Steve Jobs hafi verslað í fataskápinn hans Atvinnulíf Gætu lagt 757-þotunum í haust Viðskipti innlent Ungir frumkvöðlar byggðu allt frá grunni Samstarf Hvenær getur þú hætt að vinna? Samstarf Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Viðskipti innlent „Þjóðaröryggismál að viðhalda þessari stétt“ Samstarf Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör Viðskipti innlent Afkoma umfram áætlanir Viðskipti innlent Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Viðskipti innlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Afkoma umfram áætlanir Hærri vaxtatekjur skýra verulega aukinn hagnað Íslandsbanka Hundruð milljóna í að draga úr losun frá stóriðjunni Ingimar bætist í eigendahóp Atlavíkur Alvotech lækkar hressilega eftir uppgjör „Flugmiðinn hefur hækkað um heim allan“ Tekjur um þrettán milljarðar á fyrsta ársfjórðungi Skiluðu hluthöfunum rúmum sjö milljörðum í hagnað Bláa lónið fær sérleyfi og lóð í Þjórsárdal Google meðal fjárfesta í CCP sem heitir nú Fenris Creations Gætu lagt 757-þotunum í haust Lággjaldafélag Nova byggt á gervigreind komið í loftið Ætla að draga enn úr framboði Icelandair í haust Beint streymi: Fimmtán fá viðurkenningu fyrir góðan árangur í sjálfbærni Ráðast í breytingar í yfirstjórn Styrkáss Einbeita sér að kaffinu eftir lokun kaffihúsanna Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Haraldur selur fyrir 94,5 milljónir í Skaga Síðustu kaffihúsum Kaffitárs lokað Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Sjá meira