Færðu veðsett 101 Hótel á eigin nöfn Þorbjörn Þórðarson skrifar 23. febrúar 2010 18:45
Veðbönd upp á rúmlega milljarð króna hvíla á 101 Hótelinu á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu. Eigendur þess, Jón Ásgeir Jóhannesson og Ingibjörg Pálmadóttir, hafa fært eignina á eigin nöfn. 101 Hótel, sem stendur að horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu, var áður skráð á fyrirtækið IP Studium en hótelið er nú í jafnri eigu þeirra Jóns Ásgeirs og Ingibjargar Pálmadóttur og eru þau hvor um sig með 50 prósent hlut, að því er fram kemur í veðbandayfirliti fasteignarinnar. Ingibjörg Pálmadóttir vildi ekki tjá sig um þessa breytingu á eignarhaldi fasteignarinnar í samtali við fréttastofu. Þá fengust þær upplýsingar hjá skilanefnd Landsbankans, sem á stærstu áhvílandi veðkröfuna á fasteigninni, að nefndinni væri ekki kunnugt um þessa breytingu á eignarhaldi. Áhvílandi á fasteigninni núna er tryggingarbréf frá Landsbankanum upp á 7 milljónir dollara. Tilurð tryggingabréfsins má rekja til þess að Jón Ásgeir veðsetti lúxusíbúðir sínar í New York án vitneskju skilanefndar Landsbankans en bankinn fjármagnaði kaupin á þeim árið 2007. Því gerði skilanefndin þá kröfu í júní á síðasta ári að tryggingarbréfið yrði fært á hótelið til að bæta tryggingastöðu sína. Auk þess hvílir á hótelinu veðskuldabréf upp á 350 milljónir frá Arion banka. Það eru því veðbönd alls upp á rúmlega 1,3 milljarða króna sem hvíla á fasteigninni. Fasteignin er sögufræg en húsið var byggt í sjálfboðavinnu af verkafólki árið 1935 og hýsti lengi vel starfsemi Alþýðuflokksins. Húsið var endurinnréttað og hannað af Ingibjörgu Pálmadóttur en hún hlaut viðurkenningu Þróunarfélags Reykjavíkurborgar fyrir framlags sitt til uppbyggingar í miðborg Reykjavíkur með hönnun hótelsins árið 2003, en hótelið þótti skemmtileg viðbót í hótelflóru borgarinnar.
Mest lesið Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Viðskipti innlent Ósýnilegir múrar: „Ekki nóg að segja bara að fólk eigi að vinna saman“ Atvinnulíf Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Viðskipti innlent Loka í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Viðskipti innlent Ekki allir geta sagt: „Ég græddi fúlgur fyrir fyrirtækið í dag“ Atvinnulíf Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Viðskipti innlent Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Viðskipti erlent Kaffitár hressir ferðalanga sem stoppa á Olís Samstarf Skatturinn birtir álagningu í dag Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Hækka stýrivexti aftur Vaxtahækkun gefin skýrt til kynna „Ég er ekki vanur að setja á mig spádómshattinn“ Deila Icelandair við flugmennina snýst um þetta Er alveg ómögulegt að geyma sparnað á bankareikningi? Engar hópuppsagnir í apríl „Til mikils að slægjast í kjarabaráttu á þeim bænum“ Þórir og Ómar ganga til liðs við Vettvang Farangursvagni ekið utan í flugvél og flugferð aflýst María nýr stjórnarformaður SVEIT Ný Lindex verslun opnuð í Kringlunni Ráðinn forstjóri Nathan Ekkert verður af sameiningu lífeyrissjóðanna Sjá meira