ReMake í úrslit í alþjóðlegri keppni sprotafyrirtækja 15. nóvember 2010 09:43 ReMake Electric hefur náð afar athygliverðum árangri á skömmum tíma, en í apríl sigraði fyrirtækið í Gullegginu 2010.
Íslenska sprotafyrirtækið ReMake Electric er komið í úrslit í alþjóðlegri keppni sprotafyrirtækja um grænar hátæknilausnir, Cleantech Open Global Ideas Competition. Keppnin er sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og mun Hilmir Ingi Jónsson, framkvæmdastjóri Remake kynna viðskiptahugmynd fyrirtækisins í úrslitum keppninnar sem fer fram í Kísildalnum í Californíu þann 17. nóvember. Í tilkynningu segir að þar munu um 2500 fjárfestar, frumkvöðlar og samstarfsaðilar keppninnar kjósa um sigurvegara í kjölfar þess að Hilmir ásamt öðrum keppendum frá yfir 20 löndum munu kynna fyrirtæki sitt. Samhliða keppninni sjálfri var ReMake boðið að taka þátt í vinnusmiðju efnilegra sprotafyrirtækja á sínu sviði. Úrslit keppninnar eru jafnframt hluti af Alþjóðlegu athafnavikunni sem fer fram í næstu viku um allan heim. ReMake var eitt fimm sprotafyrirtækja á Norðurlöndunum sem valið var til að keppa til úrslita í Global Ideas keppninni í kjölfar þátttöku í fyrsta hluta sambærilegrar norrænnar frumkvöðlakeppni, Nordic Cleantech Open. Ásamt ReMake frá Íslandi voru frá Norðurlöndunum valin fyrirtækin Ecospark frá Svíþjóð, Abeo frá Danmörku, PontoonPower frá Noregi og ZenRobotics frá Finnlandi. Norræna frumkvöðlakeppnin sem nú er haldin í fyrsta sinn er þó rétt að hefjast og mun ljúka í Apríl á næsta ári. Nordic Cleantech Open var stofnuð af Innovit á Íslandi, Venturecup í Danmörku og Cleantech Scandinavia í Svíþjóð auk fjölmargra samstarfsaðila frá öllum norðurlöndunum. ReMake Electric hefur náð afar athygliverðum árangri á skömmum tíma, en í apríl sigraði fyrirtækið í Gullegginu 2010, frumkvöðlakeppni Innovit fyrir íslensk sprotafyrirtæki, og á haustmánuðum fjárfestu Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins og Eyrir Invest í áframhaldandi uppbyggingu fyrirtækisins á alþjóðavísu. „Það getur án vafa opnað margar dyr fyrir íslenskt sprotafyrirtæki að komast í snertingu við alþjóðlega fjárfesta og mögulega viðskiptavini í Bandaríkjunum í gegnum virta keppni sem þessa. Keppnin hefur skapað sér gott orðspor og þarna verða samankomnir fremstu fjárfestar í geiranum ásamt fulltrúum stórfyrirtækja sem eru í leit að nýjum og grænni tæknilausnum en áður hafa þekkst. ReMake er því verðugur fulltrúi Íslands í keppninni og við óskum við Hilmi alls hins besta í erfiðri samkeppni framundan," segir Andri Heiðar Kristinsson, framkvæmdastjóri Innovit og stjórnarmaður í Nordic Cleantech Open
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira