World Class á spottprís Þorbjörn Þórðarson skrifar 15. nóvember 2010 18:52
Björn Leifsson og Hafdís Jónsdóttir greiddu aðeins 25 milljónir króna fyrir rekstur World Class þegar þau keyptu hann af þrotabúi Þreks, sem var í eigu þeirra sjálfra. Eignin er metin á 500-700 milljónir króna. Þrek ehf. var rekstrarfélag World Class og fór í þrot á síðasta ári, en kröfur í þrotabúið nema 2,2 milljörðum króna. Sama dag og félagið fór í þrot keypti Laugar ehf., annað félag í eigu hjónanna Björns Leifssonar og Hafdísar Jónsdóttur, rekstur World Class stöðvanna út úr fyrirtækinu á 25 milljónir króna. Fimm milljónir voru greiddar með reiðufé og 20 milljónir króna voru í formi yfirtöku á skuldum. Sigurbjörn Þorbergsson, skiptastjóri þrotabús Þreks ehf., telur kaupsamninginn gjafagerning og sagðist í samtali við fréttastofu í dag ætla að höfða mál til riftunar á kaupunum, en hann telur World Class mun meira virði og metur fyrirtækið á 500-700 milljónir króna. Yfir 20 þúsund áskrifendur eru með líkamsræktarkort hjá fyrirtækinu. Sigurbjörn óskaði eftir viðræðum við þau Björn og Hafdísi um þetta en þau höfnuðu því. Hann sagði því ekkert annað í stöðunni en að höfða mál. Sigurbjörn segir að í kaupsamningnum hafi áskriftargrunnur fyrirtækisins ekki verið tilgreindur sem andlag kaupsamnings, aðeins lausafjármunir eins og augnskannar, tölvur og afgreiðslukassar. Hins vegar komi þar fram að Laugar ehf. taki við skuldbindingum gagnvart viðskiptavinum. Í viðtali í fréttum Stöðvar 2 hinn 29. október á síðasta ári hafnaði Björn Leifsson því alfarið að standa í kennitöluflakki, en stuttu áður höfðu hann og eiginkona hans keypt reksturinn út úr hinu gjaldþrota félagi. Björn Leifsson sagðist í samtali við fréttastofu í dag ekki fallast á að kaupverðið hafi aðeins verið 25 milljónir, því í kaupunum hafi Laugar ehf. tekið yfir skuldbindingar gagnvart korthöfum með fyrirframgreidd kort sem námu 266 milljónum króna. Hann sagðist jafnframt ekki skilja hvernig skiptastjórann fengi út verð á bilinu 500-700 milljónir króna.
Mest lesið Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Viðskipti innlent Ísbúð Vesturbæjar í Skipholti lokað Neytendur Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Viðskipti innlent Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Airbnb-gestir þurfa ekki lengur að vaska upp Neytendur Fleiri fréttir Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Fljúga daglega til Boston Sjá meira