Viðskipti innlent

Álfheiður er ríkasti ráðherrann

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Álfheiður Ingadóttir er ríkust í ríkisstjórninni
Álfheiður Ingadóttir er ríkust í ríkisstjórninni
Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra er ríkasti ráðherrann samkvæmt álagningaskrá sem birt var um síðustu mánaðamót. Eftir því sem fram kemur í Viðskiptablaðinu í dag á Álfheiður 150 milljónir í eignir umfram skuldir sem hún greiðir auðlegðarskatt af.

Davíð Oddsson, núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, á samkvæmt álagningarskrá 159 milljónir króna í hreina eign og Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins 130 milljónir króna.

Auðlegðarskatturinn var lagður á eignir 3.817 fjölskyldna. Hann skilar um 3,8 milljörðum króna í ríkissjóð. Þeir sem greiða skattinn eru einstaklingar sem eiga 90 milljónir króna í hreinar eignir og hjón eða sambúðarfólks sem eiga meira en 120 milljónir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×