Krónum skipt í skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum 12. október 2010 08:01
Í skoðun er að fjárfestar geti skipt krónueignum fyrir skuldabréf í erlendum gjaldmiðlum. Það yrði gert í útboðum og því framhjá mörkuðunum og ætti því að hafa lágmarksáhrif á markaðina. Þetta kemur fram í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa. Þar segir að krónan styrktist í liðinni viku og lækkaði gengisvísitalan um 0,33% og endaði í 205,6473. Krónan hefur styrkst undanfarið í mjög hægum skrefum. Það hefur gerst þrátt fyrir að Seðlabanki Íslands hafi keypt gjaldeyri á markaði í hverri viku til að takmarka möguleika krónunnar á frekari styrkingu. Með þessu er Seðlabankinn annars vegar að byggja upp gjaldeyrisforðann og hins vegar að tryggja að krónan verði ekki of sterk en það myndi draga úr útflutningstekjum og ýta undir innflutningi á neysluvörum. Veikur gjaldmiðill gerir viðkomandi þjóð samkeppnishæfari í alþjóðaviðskiptum og nú keppast margar ríkisstjórnir við að veikja gengi gjaldmiðla sinna til að bæta samkeppnisstöðuna og er talað um að gjaldmiðlastríð ríki í heiminum. Í síðustu viku var Arnór Sighvatsson með erindi á morgunfundi sem Íslensk verðbréf hf. stóðu fyrir. Erindi Arnórs bar heitið „Leiðin úr viðjum gjaldeyrishafta". Þar kom margt áhugavert fram, m.a. að Seðlabankinn ætli að endurskoða áætlun um afnám gjaldeyrishafta frá grunni. Hann sagði ennfremur að í undirbúningsvinnunni yrði lagt upp með að þau skref sem stigin yrðu myndu hafa lágmarksáhrif á gjaldeyris- og skuldabréfamarkaðinn.
Mest lesið Stefndi á Hollywood en hefur ekki heyrt í þeim enn Atvinnulíf Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Viðskipti innlent Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Viðskipti innlent Frá fjósinu í Hörpu – fjölskyldubú hlýtur viðurkenningu Framúrskarandi fyrirtæki Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Viðskipti innlent Fréttirnar sem fylgja okkur í vinnuna Atvinnulíf Ella frá Marel til Landsbankans Viðskipti innlent Forstjóri McDonald's hættir vegna sambands við samstarfsmann Viðskipti erlent Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Viðskipti innlent Undirbúningur kólnunar: Hver er BMI stuðullinn þinn í vinnu? Atvinnulíf Fleiri fréttir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Högnuðust vel á fjórðungnum en reiknað með tapi á árinu Landsvirkjun og Elkem semja til 2039 Stýrir vörumerkja- og markaðsmálum hjá Íslandshótelum Norðurlöndin efla samstarf sitt í fjármálaeftirliti Leiguverð lækkar að raunvirði og óvissa á fasteignamarkaði Íslendingar lent í slæmum málum á Ítalíu Veiðigjöldin lækkað en ekki hækkað á þessu ári Skuldar þrotabúi föður síns hundruð milljóna króna til Lilja Dögg ráðin forstjóri Eitt greiðir arð en annað með neikvætt eigið fé Willum í stjórn Litla spítalans Eggert ráðinn til Litla spítalans Taldi sig hafa boðið 5.000 kall í fyrsta farrými en greiddi sexfalt meira Þriggja milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Borgar sig að taka lífeyri samhliða 100% vinnu? Afkoman úr þremur milljónum í plús í tuttugu í mínus Allt uppselt og skellt í lás hjá Skims Tekur við stjórn Fyrirtækjamiðstöðvar Íslandsbanka Fella niður 1,4 milljarða sekt Landsvirkjunar Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Play komið í eignasafn Icelandair Verðbólguþrýstingurinn að gefa eftir Phoenix Seafood og Eðalfang sameinast Apple notendur geta sent SMS á Neyðarlínu í gegnum gervihnött Íhuga að krefja Ölgerðina skýringa Sjá meira