PwC bendir á ábyrgð bankanna Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. desember 2010 15:29
PricewaterhouseCoopers segir ábyrgð á uppgjörum Glitnis og Landsbankans hafa hvílt á stjórnendum bankanna. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá endurskoðendafyrirtækinu, en eins og fram kom í fréttum fyrir helgi segir í skýrslum norskra og franskra sérfræðinga að óeðlilega hafi verið staðið að reikningsskilum í ársskýrslum 2007 og árshlutareikningum 2008 hjá bönkunum. Eru endurskoðendur, sem voru á vegum PwC, sakaðir um vanrækslu. „PwC minnir á að það eru stjórnendur bankanna, þ.m.t. stjórnir og bankaráð, sem bera ábyrgð á uppgjörum þeirra. Sú ábyrgð er bæði lagaleg og samfélagsleg. Stjórnendur leggja ársreikninga fram og gefa út viðamiklar skriflegar staðfestingar til enduskoðenda um réttmæti upplýsinga. Slíkar yfirlýsingar, ásamt öðrum endurskoðunargögnum, liggja fyrir í vinnuskjölum PwC og verða lagðar fram á réttum vettvangi," segir í yfirlýsingu frá Reyni Vigni, forstjóra PwC. Hann segir í yfirlýsingunni að PwC telji sjálfsagt og eðlilegt að uppgjör bankanna, sem féllu haustið 2008, og endurskoðun á þeim komi til skoðunar eins og önnur atriði er tengist bankahruninu. Jafn sjálfsagt sé að öll málsmeðferð í því sambandi sé vönduð og hafin yfir vafa.
Mest lesið Tvírukkaðar færslur leiðréttar Viðskipti innlent Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Viðskipti innlent Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Viðskipti innlent Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Viðskipti innlent Sigmundur Davíð finnur fyrir sterkum öflum sem vinna gegn afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Viðskipti innlent Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Viðskipti innlent Fljúga til Wales í haust í tengslum við landsleikina Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Fleiri fréttir Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Sjá meira